Esjan er þarna enn…

Mér datt allt í einu í hug að athuga hvort gamla bloggið mitt væri ekki enn á sínum stað. Og sko til - það er þarna enn. Rosalega hafði ég miklar skoðanir á hlutunum í vor. Ég sé það núna að ég hef verið hálf heiladauð í margar vikur.

* * *

Jón!! Afhverju kemur þú ekki bara á blótið með okkur Óla? Og Jóhanna líka? Þetta blót er opið öllum og allir eru velkomnir.

3 Responses to “Esjan er þarna enn…”

  1. Nonni Says:

    Nú mér hefur ekki verið boðið. Ekki fyrr en nú ef þetta var boð. Því miður búinn að gera aðrar ráðstafanir en takk samt.

  2. Jóhanna Says:

    …og yfirgefa fjölskylduna á frídegi V.? Ég held ekki. Þakka samt gott boð. Hefði líklega þegið það með þökkum e-n tíman í fyrndinni.

  3. Steinunn Þóra Says:

    Það þarf ekki að bjóða á atburði sem eru opnir öllum…en það er kannski betra að láta fólk vita af þeim.