Þorri nálgast
Í morgun var loks tími í námskeiðinu Menningarsvæði. En ég gerði einmitt tilraun til þess að mæta í tíma í því fyrir tveimur vikum.
Ó hvað það var erfitt að vakna í morgun.
Annars hef ég víst alveg gleymt að segja frá því að afmælið hjá Þóreyju Péturs var stórskemmtilegt. Þar var auðvitað allt fullt af Norðfirðingum. Meðal annarra var þar sá höfuðsnillingur, Óli Egils. Við Óli sammæltumst um að fara á Þorrablót Ásatrúarfélagsins næstkomandi föstudag. Því miður getur Stefán aðeins mætt seint og illa þar sem hann þarf að níðast á menntskælingum fyrrihluta kvölds.
Held að þetta verði þrusu blót. Allavega eru rosa tónlistargjörningar boðaðir.
January 21st, 2004 at 12:27 pm
En hvað með Mánagötuþorrablótið. Ég vona að þið Óli ætlið ekki að láta nægja að fara á Ásatrúarblót! Maður stólar nú á að mæta á Mánagötuna a.m.k. á þorrablót. Skammarlegt, en ég held að við “skötuhjónin” (eins og einn orðaði það á jólakorti) höfum bara ekki komið síðan á síðasta þorrablóti!
January 21st, 2004 at 2:18 pm
Þorrablót eru rót alls ills. Þar er bara fyllerý!!!
January 22nd, 2004 at 8:15 am
Jah, tali bara hver fyrir sig!
January 22nd, 2004 at 12:48 pm
Og það gerði ég! Þ.e ef þesu var beint til mín.
January 22nd, 2004 at 12:55 pm
Húsráðendur á Mánagötu eru galopnir fyrir því að ræða Þorrablót. Verðum við ekki bara að skipa nefnd um málið…eins og alltaf hefur verið gert?