Fórum loks í bíó
Við hjónaleysin fórum loks á Hringadróttinssögu í gær. Það var svosem alveg ágætt en ég verð að viðurkenna að ég er enginn sérstakur aðdáandi. Mér hefur t.d. aldrei dottið í hug að lesa bækurnar. Var pínd til að lesa Hobbit í menntó og það var alveg meira en nóg fyrir mig.
Það pirraði mig þó talsvert í gær þegar konan drap skrímslið sem enginn maður, en þó öllu heldur KARLmaður í þessu tilfelli, átti að geta drepið. Ég var farin að hlakka svo til þess þegar litlu hobbitarnir fengju uppreisn æru og yrðu viðurkenndir sem stríðsmenn eftir að hafa fellt það.
January 21st, 2004 at 10:20 am
Já ég er hálf sammála þér í þessu atriði.. var of Bandarískt fyrir minn smekk.
En það má kannski minnast á það að í bókinni þá voru það konan og hobbitinn sem börðust við það hlið við hlið. Hobbitinn kom ekki aftan að honum eins og í myndinni. Mun flottari sena í bókinni.