Glæpamenn í snjónum

Vaknaði órtúlega fersk eftir letikvöldið í gær. Mætti á laugardagsfund hjá VG þar sem heilbrigðismálin voru rædd og er bara frekar ánægð með mig og finnst ég bara frekar meðvitaður og góður þjóðfélagsþegn í dag.

Er að reyna að sannfæra sambýlinginn um að í nú væri gott að fara í sund og leggjast í bleyti í heitan pott og búa sig þannig vel undir afmælisátök kvöldsins. Sambýlingurinn virðist þó telja tíma sínum betur varið við að blogga um GB undir því yfirskini að hann sé að vinna.

Ég sé því fram á að í stað þess leggjast í bleyti verði ég að nota tímann til að koma loks einhverju skipulagi á líf mitt með því að færa það allt saman inn í þá glænýju dagbók fyrir árið 2004 sem ég var að versla mér.

Það er þó að segja, ef enginn glæpamaður hefur tekið stæðið mitt og ég verði að eyða því sem eftir er af deginum við að moka nýtt stæði.

Var þetta ómarkviss færsla? Það er ótrúlegt hversu mörg ef einkenna líf manns.

Comments are closed.