Skítakuldi
Þvílík óhljóð þegar Volvóinn fór í gang í morgun! Annaðhvort var ég búin að gleyma hávaðanum eða bílinn er enn að ná sér.
* * *
Ég get svo sannarlega vottað það að það er skítakuldi. Ég lét systur mína plata mig með sér í sund. Endaði með að synda heila 700 metra enda eingin leið að stoppa þegar ofaní laugina var komið. Það að stoppa eitthvað að ráði hefði verið ávísun á kvef eða eitthvað þaðan af verra. En það sem ekki drepur mann herðir mann og ég er aldeilis harðari núna seinnipartinn en ég var í morgum.
* * *
Annaðkvöld er stefnan tekin á þrítugsafmæli Þóreyja Péturs. Hún er búin að vera að skipuleggja þessa veislu í marga mánuðu svo þetta hlýtur að verða alveg magnað. Ætla rétt að vona að henni hafi tekist að losa sig við pestina sem ég frétti að hún hefði náð sér í um daginn.