Skólalíf
Mætti í morgun upp í Háskólabíó þar sem ég taldi mig eiga að mæta í fyrsta tímann í kúrsinum Menningarsvæði. Kennsla í mannfræði byrjar hinsvegar ekki fyrr en eftir viku svo ég fór bara heim og hélt áfram að lesa Rebus.
Seinnipartinn mætti ég svo í tíma í námskeiðinu Þættir út sögu og heimspeki vísindanna hjá Skúla Sigurðssyni. Leist óskaplega vel á námskeiðið og ætla því að mæta glaðbeitt og skrá mig í það til 5 eininga á morgun.
January 8th, 2004 at 11:02 am
Ertu viss um að það sé tími í næstu viku….þar sem félagsvísindadeild byrjar 15.jan og menningarsvæðin eru á miðvikudögum þá hef ég verið með efasemdir…..
January 8th, 2004 at 1:52 pm
Skotta, þú ert greinilega mun betri í reikningi en ég og líklega er þetta alveg rétt hjá þér…þannig að ég hef mætt í tímann tveimur vikum of snemma…en ömurlega nördalegt.