Vonbrigði
Þá er Stefán farinn til Noregs. Vinnuvetendur hans virðast óttast að hann ætli á símafyllerí þarna úti og hafa því gert símann hans óvirkan í útlöndum. Þ.e.a.s. þannig óvirkan að hann getur hvorki hringt sjálfur né sent sms. Það ætti því enginn að gera ráð fyrir að hann svari sms-um um veruna í Osló.
* * *
Ég hlustaði á dráttinn í Kastljósinu vegna GB í útvarpinu í bílnum mínum. Mér fannst stelpurnar ótrúlega duglegar að hafa lagt skammstöfun hvers einasta skóla á minnið og var eiginlega bara orðin spent hvort þær kæmust í gegnum þetta allt saman án þess að klúðra skammstöfun. Það var því ekkert smá anti-klímax að sjá endursýninguna í sjónvarpinu og sjá að skammstafarnirnar voru allar skrifaðar á miðana…
January 7th, 2004 at 3:14 pm
Hann þarf kannski ad skipta sjalfur i telenor eda hitt simafyrirtækid sjalfur i gegnum simann sinn. Kann hann thad? Dagbjört kann það allavega þannig að hun gæti leiðbeint ef með þarf.