Framtíðarplön
Wednesday, January 28th, 2004Bílinn minn bilað nánast um leið og Stefáns bíll fór í gang svo ég er meira og minna strætóandi þessa dagana. Sveinn leit við í gær og kíkti aðeins á bílinn. Hann herti eina skrúfu en úrskurðaði svo að líklegast væri rafgeymirinn dauður en það þyrftu þó menn með þar til gerð mælitæki að skera úr um.
Framtíðarplönin eru því að koma bílnum undir læknishendur.
Þangað til hef ég hugsað mér að vera á strætó nema þegar ég get fengið Stefán til að skutla mér.