ÖBÍ í góðum gír

Fundurinn hjá aðalstjórn ÖBÍ í gær var ekki sem verstur. Svona fyrir utan kuldan í fundarsalnum sem var alveg hrikalegur. Við samþykktum einróma að láta Ragnar Aðalsteinsson kanna betur lagalega stöðu samkomulagsins sem ríkisstjórnin gerði við ÖBÍ. Það má sjá samþykktina hér.

Verð að viðurkenna að mér finnst ekki leiðinlegt að hafa verið með í að samþykkja þetta.

Svo var kynning á rannsókn sem Gigtarfélag Íslands hefur látið gera. Gigt er ansi merkilegur sjúkdómur sem talið er að fimmti hver Íslendingur þjáist af. Þar af eru stór hluti konur. Í rannsókninni kom fram að gigtarsjúklingar vita almenn lítið um réttarstöðu sína í íslenska kerfinu. Ég gæti trúað að þannig sé að með ansi marga sem þjást af krónískum sjúkdómum.

Ýmsar grunn upplýsingar má finna á heimasíðum Tryggingarstofununar og Öryrkjabandalagsinns.

Það er þó svolítið stór galli að almannatryggingarkerfi okkar Íslendinga er einn gríðar stór frumskógur og því ekki einfallt fyrir fólk að gera sér grein fyrir réttindum sínum. Ég er t.d. alltaf að uppgötva nýja og nýja hluti sem einhversstaðar hefur verið samþykkt að ég eigin rétt á. Sem er kaldhæðnislegt í ljósi þess að endalaust má heyra sögur af því hvernig kerfið sé misnotað af óprúttnum þykjustu öryrkjum.

Mun minna er hinsvegar talað um allan þann fjölda öryrkja sem ég hef grun um að séu þarna úti og fara á mis við lögbundin réttindi sín, vegna þess hversu flókið kerfið er.

Nú finnst mér ég verða að segja að auðvitað sé þetta hneisa!!

* * *

Það er aftur farið að grafa í götunni minni. Hvar endar þetta eiginlega? Það er þó eiginlega mest svekkjandi að það virðist bara vera grafið milli 9 og 11 á morgnanna.

Comments are closed.