Gómsætt fundarboð?!

Ég var að fá mitt fyrsta fundarboð á fund hjá aðastjórn ÖBÍ. Fundurinn verður 10.des. og jólahlaðborð að honum loknum. Mér finnst að öll fundarboð ættu að innihalda fyrirheit um krásir að fundinum loknum. Þá væri nú gaman að vera til.

* * *

Það verður spennandi að sjá hvort sjónvarpið verður komið í lag þegar ég kem heim. Geri þó svona frekar ráð fyrir að þar verði bara sama snjókoman og hefur verið síðustu daga.

* * *

Held að mér sé kannski að takast að gera smá jólabarn úr Stefáni. Hann viðurkenndi allavega að serían væri bara frekar huggulega þegar hún var komin á sinn stað (og búið að þurka burtu mesta rykið sem hún lýsti upp).

4 Responses to “Gómsætt fundarboð?!”

  1. Bryndis Says:

    Sjitt, hvad Stefan ma vera litid jolabarn ef thu ert skarri

  2. sonja Says:

    Er Stebbi ekki búinn að segja þér frá herðatréinu?

  3. Steinunn Þóra Says:

    Haag! Hvaða herðatré?

    Og já, hann er alveg skelfilega lítið jólabarn…

  4. Steinunn Þóra Says:

    Haag! Hvaða herðatré?

    Og já, hann er alveg skelfilega lítið jólabarn…