google
yahoo
bing

Archive for December, 2003

Stefán strípalingur?!

Friday, December 12th, 2003

Ekki þó Stefán Pálsson.

Sá í Fréttablaðinu í gær að stúdentar í Berlín eru farnir að fækka fötum í baráttu sinni gegn skólagjöldum. Gaman væri að vita hvort félagi Jónsson sé með í þeim aðgerðum. Vona bara að stúdentarnir forskalist ekki.

Stefán strípalingur?!

Friday, December 12th, 2003

Ekki þó Stefán Pálsson.

Sá í Fréttablaðinu í gær að stúdentar í Berlín eru farnir að fækka fötum í baráttu sinni gegn skólagjöldum. Gaman væri að vita hvort félagi Jónsson sé með í þeim aðgerðum. Vona bara að stúdentarnir forskalist ekki.

ÖBÍ í góðum gír

Thursday, December 11th, 2003

Fundurinn hjá aðalstjórn ÖBÍ í gær var ekki sem verstur. Svona fyrir utan kuldan í fundarsalnum sem var alveg hrikalegur. Við samþykktum einróma að láta Ragnar Aðalsteinsson kanna betur lagalega stöðu samkomulagsins sem ríkisstjórnin gerði við ÖBÍ. Það má sjá samþykktina hér.

Verð að viðurkenna að mér finnst ekki leiðinlegt að hafa verið með í að samþykkja þetta.

Svo var kynning á rannsókn sem Gigtarfélag Íslands hefur látið gera. Gigt er ansi merkilegur sjúkdómur sem talið er að fimmti hver Íslendingur þjáist af. Þar af eru stór hluti konur. Í rannsókninni kom fram að gigtarsjúklingar vita almenn lítið um réttarstöðu sína í íslenska kerfinu. Ég gæti trúað að þannig sé að með ansi marga sem þjást af krónískum sjúkdómum.

Ýmsar grunn upplýsingar má finna á heimasíðum Tryggingarstofununar og Öryrkjabandalagsinns.

Það er þó svolítið stór galli að almannatryggingarkerfi okkar Íslendinga er einn gríðar stór frumskógur og því ekki einfallt fyrir fólk að gera sér grein fyrir réttindum sínum. Ég er t.d. alltaf að uppgötva nýja og nýja hluti sem einhversstaðar hefur verið samþykkt að ég eigin rétt á. Sem er kaldhæðnislegt í ljósi þess að endalaust má heyra sögur af því hvernig kerfið sé misnotað af óprúttnum þykjustu öryrkjum.

Mun minna er hinsvegar talað um allan þann fjölda öryrkja sem ég hef grun um að séu þarna úti og fara á mis við lögbundin réttindi sín, vegna þess hversu flókið kerfið er.

Nú finnst mér ég verða að segja að auðvitað sé þetta hneisa!!

* * *

Það er aftur farið að grafa í götunni minni. Hvar endar þetta eiginlega? Það er þó eiginlega mest svekkjandi að það virðist bara vera grafið milli 9 og 11 á morgnanna.

Jibbí jei

Wednesday, December 10th, 2003

Vei, vei, vei komin í jólafrí.

Prófið var hrikalega langt. Allt of langt. Mér er enn illt í hendinni af því að skrifa og þó eru liðnir fjórir klukkutímar síðan ég var búin.

Fyrstu klukkutímum jólafrísinns hef ég eytt á netinu og við að drekka kaffi heima hjá mömmu. Það er hið hlúfa líf.

Svo tekur alvaran við á eftir hjá ÖBÍ. Er búin að vera að hita mig upp með því að lesa greinar eins og t.d. þessa eftir Ögmund.

Ef ég verð mjög dugleg reyni ég líka að plægja mig í gegnum lagafrumvarpið um breytingarnar á lögunum. Frumvarpið eins og það var áður en ríkisstjórnin fór að krukka í það.

En þar sem ég er búin í prófun, komin í jólafrí og er í æðislega jákvæðu skapi held ég að það verði pís of keik, ef ekki bara bráðskemmtilegt.

Jólafrí í nánd

Tuesday, December 9th, 2003

Nútíðin er ekki alveg nógu skemmtileg. Þess vegna ætla ég að skrifa um framtíðina.

Á morgun kl. 12 verð ég komin í jólafrí. Það verður gaman. Þá ætla ég að hefjast handa við að slá Ofbeldisannálinn inn í tölvu. Veit ekki hvort það verður gaman en það er allavega verkefni sem ég tók að mér að klára í jólafríinu.

Svo er fundur hjá ÖBÍ um kvöldið…

Ómögulegur heimur

Thursday, December 4th, 2003

Greinarnar sem ég er að lesa fyrir prófið í næstu viku eru full átakanlegar og niðurdrepandi. Annarsvegar fjalla þær um mansal en hinsvegar um nauðganir sem lið í þjóðernishreinsunum.

Það er bara svo allt of milið sem er að þessum heimi sem við lifum í.

Á maður kannski að taka sér pásu frá svona lestri og hlusta á jolly jólalög?!?

Gómsætt fundarboð?!

Wednesday, December 3rd, 2003

Ég var að fá mitt fyrsta fundarboð á fund hjá aðastjórn ÖBÍ. Fundurinn verður 10.des. og jólahlaðborð að honum loknum. Mér finnst að öll fundarboð ættu að innihalda fyrirheit um krásir að fundinum loknum. Þá væri nú gaman að vera til.

* * *

Það verður spennandi að sjá hvort sjónvarpið verður komið í lag þegar ég kem heim. Geri þó svona frekar ráð fyrir að þar verði bara sama snjókoman og hefur verið síðustu daga.

* * *

Held að mér sé kannski að takast að gera smá jólabarn úr Stefáni. Hann viðurkenndi allavega að serían væri bara frekar huggulega þegar hún var komin á sinn stað (og búið að þurka burtu mesta rykið sem hún lýsti upp).