Kunnugleg mynd

Í gærkvöldi horfði ég á myndin American Outlaws. Ég hafði reyndar verið að íhuga að fara að sofa strax kl 22:15 en nennti ekki að hátta mig og tannbursta svo ég hélt áfram að liggja í sófanum. Sá þ.a.l. myndina.

Myndin var ágætis afþreyging. Enda fáránlega margt sem svipaði til Young guns myndanna. (Ég horfði fáránlega oft á Young guns II sem unglingur).

Einhverra hluta vegna var gengið hans Jesse James einn “gáfaðann”, einn ungann sem deyr, einn indjána og einn sem tyggur munntóbak í gríð og erg. Kunnuglegt?

Gott ef vondi kallinn (sem fannst Jesse þó frekar kúl og var því ekki alvondur) minnti ekki svolítið á Pat Gareth.

* * *

Það eru greinilega að koma próf. Þjóðarbókhlaðan er fáránlega þétt setin miðað við það að það sé laugardagseftirmiddagur. Ég held hreinlega að það séu engin einstaklingsborð laus.

Comments are closed.