Áhyggjur
Ekkert hefur heyrst frá Stefáni Jónssyni síðan um daginn þegar hann sendi mér bréf til að segja mér frá stúdentaverkfallinu sem var að byrja í Berlín. Nú er ég farin að hafa áhyggjur af því að til götuóeyrða hafi komið og að hann hafi orðið fyrir táragasárás eða einhverju álíka. Hann gæti líka hafa farið í hungurverkfall. Það væri ekki gott því eins og allir sem til hans þekkja vita hefur hann ekki sérlega miklar umframbyrgðir.
November 20th, 2003 at 1:08 pm
Engar áhyggjur
Pappírsbréfið fór í póst á mánudeginum og nettengingin kemst í gagnið um helgina.
Það er hins vegar mjög gott fyrir taugakerfið og geðheilsuna að ég skuli ekki eiga baðvog…
og nú fer ég að bera kápuna á báðum öxlum.