Barátta í Berlín
Stefán Jónsson sendi mér tölvupóst frá Berlín. Það gerist ekki neitt allt of oft að við heyrum frá hvort öðru en það gerir það reyndar að verkum að það verður alltaf enn skemtilegra þegar loks berst bréf.
Þetta bréf frá Jónssyni var óvenjulegt að því leyt hvað það var hrikalega langt. Sjálfur tekur hann fram í lokinn að það séu 7 A4 blaðsíður.
Jónsson er ásamt samstúdentum sínum í Berlín í verkfalli. En verkfall var lokatilraun þeirra til þess að berjast gegn svimandi háum skólagjöldum og niðurskurði til háskóla borgarinnar.
Þetta virðist allt vera þaulskipulagt hjá þeim. Vinnuhópar og nefndir sem skipuleggja hvernig andófinu verði sem best komið á framfæri. Engir latir stúdentar þarna á ferð sem líta á verkfall sem frí. Þeir vita sem er að auðvitað getur verkfall aldrei verið frí. Kjarabarátta er hrikalega mikil vinna og puð. Stemmingin eins og henni er lýst í bréfinu minnir helst á góða síldarvertíð. Allt brjálað að gera.
Núna bíð ég spennt eftir nánari fréttum. Vona að Jónsson muni hafa tíma einhvern næstu daga til að setjast inn á internet kaffihús og segja mér frá síðustu viðburðum.
Svo vil ég náttúrulega líka hvetja hann og samstúdenta hans til dáða og vona að þeim verði ágengt í baráttu sinni.
Aldrei skólagjöld!!
Háskóli fyrir alla!!