Öreigi
Örorkubæturnar mínar hrundu um þessi mánaðarmót. Ríkið telur mér nægja kr. 59.433 til framfærslu þar sem ég er í sambúð. Ég er því orðin svo heppin að þurfa ekki lengur að borga skatt af bótunum mínum. Til þess eru þær einfaldlega of lágar. Hinsvegar nýti ég persónuafsláttinn minn í botn svo varla fer Stefán að nýta sér skattkortið mitt.
Það var því eins og mig grunaði. Það þarf alltaf að lúslesa smáaletrið. (En eins og þið getið sjálf prófað er það ekki sérlega auðskilið. Fyri þá sem nenna og finnst þetta áhugavert má plægja sig í gegnum þann frumskóg reglna sem er að finna hér og hér ).
Í frétt á textavarpi RUV kom fyrir nokkrum vikum fram að tekjutrygging einstaklings skerðist aldrei um meira en kr. 8.000. Skerðingin hjá mér var hinsvegar nær kr. 16.000 í útborguðum bótum. Í frétt textavarpsins kom nefninlega ekki fram að tekjutryggingaraukinn myndi hrynja gjörsamlega. Í mínu tilviki var hann u.þ.b. kr 14.000 í síðasta mánuði en fyrir Nóvember er hann kr. 0.
Ég hafði þó heyrt utanaf mér að pör sem ekki eiga barn saman eigi rétt á árs aðlögunartíma. Til þess að sá aðlögunartími verði virkur þaf að fylla út eitthvað ákveðið eyðublað. Það er nefninlega þannig í öllu sem viðkemur almannatryggingum að skerðingar verða alltaf sjálkrafa en til að fá það fram sem þó er lagalegur réttur manns þarf alltaf að fylla út eyðublöð. Í það verður gengið næstu daga.
November 3rd, 2003 at 7:38 pm
Þetta er ekkert nema fáránlegt! Þeir byrja að skerða um leið og fólk skráir sig í sambúð…en samt þarf maður að bíða í ár til að geta fengið þau fríðindi að nýta skattkort hvers annars. Heimska kerfi!
November 5th, 2003 at 12:22 am
shitt þetta er glæpsamlegt, nú lem ég einhvern!!!
Og ég ætla aldrei í sambúð bara til að mótmæla.