google
yahoo
bing

Archive for November, 2003

Kunnugleg mynd

Saturday, November 22nd, 2003

Í gærkvöldi horfði ég á myndin American Outlaws. Ég hafði reyndar verið að íhuga að fara að sofa strax kl 22:15 en nennti ekki að hátta mig og tannbursta svo ég hélt áfram að liggja í sófanum. Sá þ.a.l. myndina.

Myndin var ágætis afþreyging. Enda fáránlega margt sem svipaði til Young guns myndanna. (Ég horfði fáránlega oft á Young guns II sem unglingur).

Einhverra hluta vegna var gengið hans Jesse James einn “gáfaðann”, einn ungann sem deyr, einn indjána og einn sem tyggur munntóbak í gríð og erg. Kunnuglegt?

Gott ef vondi kallinn (sem fannst Jesse þó frekar kúl og var því ekki alvondur) minnti ekki svolítið á Pat Gareth.

* * *

Það eru greinilega að koma próf. Þjóðarbókhlaðan er fáránlega þétt setin miðað við það að það sé laugardagseftirmiddagur. Ég held hreinlega að það séu engin einstaklingsborð laus.

Léttir

Thursday, November 20th, 2003

Bréfið barst frá Jónssyni í morgun. Það var einstaklega ánægjulegt. Hann virðist ekki vera í neinni hættu. Löggan enn frekar róleg og stuggar bara laust við stúdentum í mótmælaaðgerðum.

Það vill svo skemmtilega til að þegar ég sendi Stebba sms til að segja frá bréfinu tiltók ég einmitt að pappírsbréf hefði borist.

Annars hefði bréfið eina þá skemmtilegustu utanáskrift sem um getur:

Stefán og Steinunn
og/eða
Steinunn og Stefán

Pólitísk rétthugsuns félaga Jónssonar virðist ekki ætla að bregðast!

Áhyggjur

Wednesday, November 19th, 2003

Ekkert hefur heyrst frá Stefáni Jónssyni síðan um daginn þegar hann sendi mér bréf til að segja mér frá stúdentaverkfallinu sem var að byrja í Berlín. Nú er ég farin að hafa áhyggjur af því að til götuóeyrða hafi komið og að hann hafi orðið fyrir táragasárás eða einhverju álíka. Hann gæti líka hafa farið í hungurverkfall. Það væri ekki gott því eins og allir sem til hans þekkja vita hefur hann ekki sérlega miklar umframbyrgðir.

Sjálfsvorkunarblogg

Tuesday, November 18th, 2003

Ég er hrædd um að ég sé farin að þjást af frekar slæmum námsleiða og verkkvíða. Það er þó huggun harmi gegn að ég veit að það er til nammi inni í skáp sem ég get gúffað í mig meðan ég reyni að bisa við að skrifa ritgerð.

Það góða er að ritgerðin er farin að taka á sig mynd. Þó á ég eftir að hnýta ýmsa lausa enda. Það slæma er að þegar þessi ritgerð er búin þarf ég strax að hefjast handa við að skrifa aðra. Ó hvað ég nenni þessu ekki.

Merkilegt

Saturday, November 15th, 2003

Það er merkilegt hvað dagblöðum þessa lands virðist vera ósammála því sem ég segi.

En hvað um það.

Á eftir er fyrsta afmælisveisla Helga Gnýs. Hann er orðinn 1 árs og 3 daga. Það er hreint ekki svo lítið.

Lendingu náð

Wednesday, November 12th, 2003

Ég þoli ekki þegar fólk heldur áfram að demba á mig verkefnum sem ég tel mig annars hafa útskýrt ágætlega hversvegna ég geti ekki tekið að mér.

Annars er ég rétt að komast niður á jörðina aftur eftir Landsfundinn. Er við það að vera búin að ná upp svefni og allir líkamsvessar eru að komast í rétt horf.

Næstu dagar fara í það að skrifa ritgerðir. Takist mér að halda fókusnum er ég í góðum málum.

Barátta í Berlín

Friday, November 7th, 2003

Stefán Jónsson sendi mér tölvupóst frá Berlín. Það gerist ekki neitt allt of oft að við heyrum frá hvort öðru en það gerir það reyndar að verkum að það verður alltaf enn skemtilegra þegar loks berst bréf.

Þetta bréf frá Jónssyni var óvenjulegt að því leyt hvað það var hrikalega langt. Sjálfur tekur hann fram í lokinn að það séu 7 A4 blaðsíður.

Jónsson er ásamt samstúdentum sínum í Berlín í verkfalli. En verkfall var lokatilraun þeirra til þess að berjast gegn svimandi háum skólagjöldum og niðurskurði til háskóla borgarinnar.

Þetta virðist allt vera þaulskipulagt hjá þeim. Vinnuhópar og nefndir sem skipuleggja hvernig andófinu verði sem best komið á framfæri. Engir latir stúdentar þarna á ferð sem líta á verkfall sem frí. Þeir vita sem er að auðvitað getur verkfall aldrei verið frí. Kjarabarátta er hrikalega mikil vinna og puð. Stemmingin eins og henni er lýst í bréfinu minnir helst á góða síldarvertíð. Allt brjálað að gera.

Núna bíð ég spennt eftir nánari fréttum. Vona að Jónsson muni hafa tíma einhvern næstu daga til að setjast inn á internet kaffihús og segja mér frá síðustu viðburðum.

Svo vil ég náttúrulega líka hvetja hann og samstúdenta hans til dáða og vona að þeim verði ágengt í baráttu sinni.

Aldrei skólagjöld!!

Háskóli fyrir alla!!

Eintóm gleði

Thursday, November 6th, 2003

Favorites er aftur komið á sinn stað. Hjúkk. Þar með þarf ég ekki að fara að hugsa.

* * *

Sá smá af Stundinni okkar áðan. Þar var bráðskemmtileg leikgerð af Mjallhvíti. Það sem var allra skemmtilegast var þó að spegillinn talaði eins og Guðni Ágústsson.

* * *

Fór með bílinn í umfelgun. Taldi það vissara þar sem leiðin liggur yfir Hellisheiðina á morgun. Hjólbarðaverkstæðis stalkerinn minn virtist hættur að vinna á verkstæðinu. Saknaði þess lítið að hitta hann ekki.

Tækni-drasl

Wednesday, November 5th, 2003

Skyndilega er Favorites boxið mitt á háskólasvæðinu tómt. Svik og prettir. Það var allavega ekki ég sem tæmdi það. Nú er ég alveg lost og man ekkert hvaða síður ég var vön að skoða eða hvernig ég kemmst inn á þær.

Tækni-drasl!!

Ég neita að þurfa að hugsa þetta allt upp aftur.

Öreigi

Monday, November 3rd, 2003

Örorkubæturnar mínar hrundu um þessi mánaðarmót. Ríkið telur mér nægja kr. 59.433 til framfærslu þar sem ég er í sambúð. Ég er því orðin svo heppin að þurfa ekki lengur að borga skatt af bótunum mínum. Til þess eru þær einfaldlega of lágar. Hinsvegar nýti ég persónuafsláttinn minn í botn svo varla fer Stefán að nýta sér skattkortið mitt.

Það var því eins og mig grunaði. Það þarf alltaf að lúslesa smáaletrið. (En eins og þið getið sjálf prófað er það ekki sérlega auðskilið. Fyri þá sem nenna og finnst þetta áhugavert má plægja sig í gegnum þann frumskóg reglna sem er að finna hér og hér ).

Í frétt á textavarpi RUV kom fyrir nokkrum vikum fram að tekjutrygging einstaklings skerðist aldrei um meira en kr. 8.000. Skerðingin hjá mér var hinsvegar nær kr. 16.000 í útborguðum bótum. Í frétt textavarpsins kom nefninlega ekki fram að tekjutryggingaraukinn myndi hrynja gjörsamlega. Í mínu tilviki var hann u.þ.b. kr 14.000 í síðasta mánuði en fyrir Nóvember er hann kr. 0.

Ég hafði þó heyrt utanaf mér að pör sem ekki eiga barn saman eigi rétt á árs aðlögunartíma. Til þess að sá aðlögunartími verði virkur þaf að fylla út eitthvað ákveðið eyðublað. Það er nefninlega þannig í öllu sem viðkemur almannatryggingum að skerðingar verða alltaf sjálkrafa en til að fá það fram sem þó er lagalegur réttur manns þarf alltaf að fylla út eyðublöð. Í það verður gengið næstu daga.