Staðalmyndir og fínir bartar
Wednesday, October 15th, 2003Á meðan Sverrir horfði á mæðgurnar horfði ég á A queer eye for the straight guy í fyrsta skipti, svona til tilraunar.
Það er merkilegt hvað það er hægt að draga upp miklar staðalmyndir af bæði samkynhneigðum og gagnkynhneigðum karlmönnum í einum þætti.
Það er eins gott að strákarnir í þættinum komast ekki í það að breyta Stefáni. Ætli þeir myndu ekki telja bartana hans til óþurftar og láta þá fjúka. Það yrði ekki gaman. Mér finnst þeir nefninlega hrikalega fínir.