Stríð eru skelfileg

Ég var að koma úr einum þeim versta tíma sem ég hef á æfinni setið í háskólanum. Það var ekki það að umfjöllunarefni dagsins væri ekki nógu áhugavert. Það var bara svo átakanlegt og hreinlega ógeðslegt á köflum.

Eva Klonowski réttarmannfræðingur var með fyrirlestur þar sem hún lýsti starfi sínu við uppgröft á fjöldagröfum í fyrrum Jugoslaviu. Þessu fylgdu fjölmargar ljósmyndir og nokkur stutt vídeó brot.

Ég verð líklega það sem eftir er af deginum að ná mér eftir þetta. En auðvitað hefur maður svosem gott af því að sjá hversu hörmuleg stríð eru og hversu hræðilegir hlutir gerast í stríðum. Það er ekki erfitt að vera friðarsinni eftir svona tíma.

Comments are closed.