Appelsínugult umhverfisslys í aðsigi?!
Helgin einkenndist af miklu annríki. Landsráðsstefna SHA var þó fín. Ég þreytti frumraun mína sem fundarstjórn og klúðraði engu stórvægilega. Það hlýtur alltaf að vera betra.
Útskriftarveislan hjá Þóru mágkonu minni var til fyrirmyndar. Mikið af góðum mat og drykk. Til hamingju með útskriftina og til hamingju með salla fína veislu.
* * *
Er þetta ekki örugglega grín !? Af hverju var ég ekki vöruð við því að Stefán væri að fara að fá sér nýjan Luton búning. Hvers eigum við hin að gjalda? Er þessi búnigur jafn hrikalegt umhverfisslys og sá appessínuguli?
October 31st, 2003 at 4:36 pm
Takk fyrir mig!!
Ég ætla að vera menningarleg og drekka vínflöskuna fínu yfir “ædolinu” í kvöld
að sjálfsögðu í hópi góðs fólks