Helgi
Í gær viltist ég þar sem ég þurfti að keyra um vegaframkvæmdirnar á Reykjanesbraut. Í stað þess að keyra inn í austurbæ Kópavogs lenti ég upp í efra-Breiðhotl. Það var fúlt.
* * *
Myndi Mótmælandi Íslands, um Helga Hóseasson er ansi góð. (Ég þakka Sverrir fyrir miðana). Mæli með því við alla að sjá hana. Hún dregur fram mannlega og fallega sýn af manni sem flestir þekkja bara út frá mótmælum og skyrslettum. Myndin gerir nefninlega svo mikklu meira en að segja frá baráttu Helga við kirkjuna. Það var t.d. sýnt mjög fallega hvað Helga þótti vænt um konuna sína. -Ó hvað það var átakanlegt þegar hún dó. Ég fékk stóran sting í magann.
En svo var líka gaman að heyra Helga sjálfan lýsa með eigin orðum baráttu sinni. Hann er greinilega milill húmoristi og mótmælaspjöldin hans eru útpæld og unnin af mikillri natni.
* * *
En nú er að koma helgi. Það þýðir samt ekki að slá megi slöku við. Landsráðstefna SHA kl. 11 í fyrramálið og vinna fyrir flokkinn. Blanda sem getur ekki klikkað.