BZ loks fundin

Um helgina fann ég loks nýja bloggið hennar Bryndísar. Reyndar er það ekki alveg rétt að ég hafi fundið það. Hún bennti sjálf á það á gömlu síðunni sinni.

Mikið varð ég glöð. Ég var næstum farin að halda að Ítalirnir hefðu gert eitthvað slæmt við hana. T.d. lokað hana inni og bara hleypt henni út til að skrifa komment hjá mér, en aldrei að blogga neitt sjálf.

Í dag hafði ég loks tíma til að plægja mig í gegnum það að lesa allar færslurnar. Var næstum búin að fara að kaupa popp og kók til að kjammsa á meðan á lestrinum stæði. Tímdi þó ekki að hætta lestrinum. Run while you still can… er alveg hrikalega átakanleg saga.

Vona að hún verði dugleg að segja sögubrot af hinu undarlega mannlífi í Urbino og að hún lifi veturinn af þrátt fyrir myglu og vosbúð.

Comments are closed.