Weird náungi

Lenti í fremur furðulegu atviki áðan. Þar sem ég stóð og var að bíða eftir lyftunni í Árnagarði (af því að ég er löt) kom drengur og spurði mig á ensku hvort ég væri íslensk. Ég varð fremur hissa og feimin en svaraði því játandi. Þá sagði drengurinn, aftur á ensku, að hann hefði bara viljað vera viss því ég liti út eins og Finni.

döh!?

Ekki fara yfir um, humh :)

En nú er best að fara heim og athuga hvort það sé búið að grafa garðinn í tætlur. Það er kannski ekki enn orðið of seint að bjarga rabbabaranum og gleðja þar með hana frú Sigríði á efrihæðinni óstjórnlega.

3 Responses to “Weird náungi”

  1. sonja Says:

    Ég myndi ekki borða rabbabaran, ekki bara það að það sé rottueitur 30 cm frá honum heldur fór líka gamall saur yfir hann þegar var verið að mynda lagnirnar. bestu kveðjur sonja, svo er hann búinn að skýla rottuholu í allt sumar…

  2. pallih Says:

    Frú Sigríður á efri hæðinni þarf ekkert að frétta það… eða hvað?

  3. Þóra Says:

    Mér finnst bróðir minn ansi oft beðinn um að fara ekki yfir um á þessari síðu …. á hann það sem sagt til? *hóst og hummmm*

    Þóra litla ;)

    p.s. hvenær verður mér svo boðið í mat? :)