Hvað veist þú um etnógrafíur, samkynhneigð og Evrópu?

Ég þakka öllum sem sendu mér samúðarkveðjur vegna andláts Fisks. Útförin var bara nokkuð falleg. Stefán gróf holu úti í blómabeði (lesist órækt), ég setti Fisk ofaní hana og Stebbi mokaði mold aftur yfir. Fyrst ætlaði ég að hafa Fisk í kassa undan ljósaperu en hætti svo við það og setti hann bara beint í moldina svo hann myndi rotna hraðar. Það var líka fallega hjartnæm sjón að sjá appelsínugulan Fisk í brúnni mold.

Annars er það helst að frétta að mér miðar svolítið áfram í öllum þeim ákvörðunum sem ég þarf að vera að taka.

Hvað varðar framtíð mína í vetur er ég t.d. búin að finna kúrs sem mig langar að taka. Hann heitir Etnógrafía Evrópu og Hulda Proppé kennir hann. Eftir tímann í gær ræddi ég aðeins við Huldu og hún er svona líka almenileg og vill endilega reyna að hjálpa mér að gera mér mat úr kúrsinum svo hann nýtist eitthvað í tengslum við mastersmámið mitt.

Næsta skref hjá mér er því að finna bók sem sameinar það þrennt að vera etnógrafía, gerast í Evrópu og fjalla á einhvern hátt um samkynhneigð. Er erinhver sem þekkir eitthvað til á þessu sviði eða hefur einhverjar hugmyndir?

Comments are closed.