Tilkynning um andlát

Hann Fiskur minn er dáinn! Síðustu vikurnar hefur hann stundum hegðað sér ansi undarlega svo okkur var farið að gruna að það styttist í endalokin og eiginlega hef ég í langan tíma hálft í hvoru átt von á því að næst þegar mér yrði litið á Fisk sæi ég hann fljótandi með magan upp. Síðustu daga hefur hann svo skipst á því að liggja á hliðinni á botninum á glerkúlunni sinni eða að reyna synda um en þá yfirleitt endað með því að fljóta með magan upp.

Í morgun kom ég svo að honum liggjandi alveg hreyfingarlausum á botninum og þegar ég bankaði í glerið hreyfði hann sig ekki. Eftir að hafa sannfært mig um að Fiskur hreyfði sig ekki neitt í langan tíma hringdi ég í Stefán og tilkynnti honum um andlátið. Mér finnst þó svolítið krípí að hann skuli ekki fljóta upp eins og mér hefur verið sagt að dánir fiskar geri.

Jarðarförin er fyrirhuguð seinnipartinn í dag þegar Stefán er búinn í vinnunni. Ætli við sleppum ekki öllum serímóníum og gröfum hann bara úti í blómabeði. Mér finnst það viðkunnalegar en að sturta honum niður. Hann var nefninlega orðinn vinur minn og ég verð eiginlega að viðurkenna hér á þessari stundu að ég talaði stundum við hann.

9 Responses to “Tilkynning um andlát”

  1. Erna E. Says:

    Samúðarkveðjur. Hefurðu þá engan að tala við núna?

  2. Smiths Says:

    Samúðarkveðjur frá mér !!!

  3. Stefán Says:

    Já, það er mikil sorg núna á Mánagötunni. Og aldrei tókst mér að kenna honum að gera brellur eða stökkva í gegnum gjörð.

  4. Bryndís Says:

    Ég sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur

  5. pallih Says:

    :(

  6. Jóhanna Says:

    Ég votta ykkur hjónaleysunum mína dýpstu samúð:(

  7. fioricet Says:

    “Oh my god, you knocked Fox off the air!” -TV worker guy
    “Like anyone on earth cares.” -Fry
    fioricet

  8. tramadol Says:

    tramadol for pain relief Whatever is not nailed down is mine. Whatever I can pry up is not nailed down.
    – Collis P. Huntingdon, railroad tycoon
    tramadol

  9. Dorrie Charles Says:

    I DID NOT INVENT IRISH DANCING
    I DID NOT INVENT IRISH DANCING
    I DID NOT INVENT IRISH DANCING
    I DID NOT INVENT IRISH DANCING

    Bart Simpson on chalkboard in episode 5F03
    fioricet for headache “Wrong,” said Renner.
    “The tactful way,” Rod said quietly, “the polite way to disagree with
    the Senator would be to say, `That turns out not to be the case.’”
    fioricet