Samhjálp er góð

Mamma bauð okkur Stefáni í dýrindis kjötsúpu í gær. Þar sem svo virðist sem móðir mín hafi verið matselja hjá vegavinnuflokki í fyrra lífi eldaði hún miklu stærri skammt en fimm manns fá með góðu móti slafrað í sig, jafnvel þegar tillit hefur verið tekið til þess að allir vilja fá upphitaða kjötsúpu einu sinni af því hún er enn betri en sú ný eldaða.

Við Stebbi gengum því í málið. Til þess að forða systkynum mínum frá því að fá ekkert nema kjötsúpu að borða næsta mánuðinn, tókum við afganga með okkur heim og nú getum við líka notið þess að fá upphitaða kjötsúpu í matinn.

Þessi saga tel ég að sýni að allir græða á samhjálp!!

One Response to “Samhjálp er góð”

  1. Vigdís Says:

    hver segir að við systkinin hefðum haft eitthvað á móti því að fá kjötsúpu allan mánuðinn…? kjötsúpa er góð, og ennþá betri með hjörtum útí :)