Vangaveltur um fundi
Monday, September 29th, 2003Einn fundur á dag kemur skapinu í lag…eða þannig. Hvort ætli það sé ég sem laðast að fundum eða þeir að mér. Ég hallast persónulega að því síðara.
Einn fundur á dag kemur skapinu í lag…eða þannig. Hvort ætli það sé ég sem laðast að fundum eða þeir að mér. Ég hallast persónulega að því síðara.
Gærdagurinn byrjaði svo vel. Ég mætti snemma í Árnagarð til þess að fá mér morgunmat, þar sem ískápurinn heima var tómur (það segir til sín að Steini er fluttur úr með alla bláu mjólkina sína). Á foxljótu kaffistofunni í Árnagarði hitti ég Sverri og meðan ég borðaði morgunmatinn minn ræddum við lífsins gagn ogg nauðsynjar. Svo kom Korbrá og tók þátt í umræðunum. Þetta var einstaklega góð byrjun á dagi og ég því full bjartsýni á framhaldið.
Um hádegi snérust hlutirnir þó til verri vegar því tölvukerfi háskólans ákvað að snuða mig. Annað hvort prentuðust ekki þeir hlutir út sem ég vildi fá eða að prenntarinn dældi skjölum út í fjórum eintökum. Ég varð foxill, hringdi í Stefán og kvartaði (hann gat auðvitað gert svo mikið til að bjarga þessu) og yfirgaf svo Árnagarð í fússi. Síðar kom einnig í ljós að mér virðist hafa texist að týna disketu í öllum stressinu og veseninu. Sem betur fer var ekki margt á henni.
Ömurlegt!
Líkamsræktar átakið heldur áfram. Ég ákvað þó að fara frekar í sund í dag því rassinn er enn aumur. Með þessu áframhaldi verð ég innan tíðar orðin eitt risa vöðvabúnt.
Hahh! Ítalir eru sjálfir háværir. Ekki lýgur Bryndís. Ég tel mig hér hafa fengið uppreisn æru.
Það er gott að heyra aftur frá stúlkunni en ég vona þó að hún fari ekki á hausinn við að stunda internetið.
…æ nei, hún er auðvita milljónamæringur…
Í gær var ég ofur dugleg og skellti mér í líkamsrækt í líkamsræktarsal háskólans. Þar hjólaði ég á þrekhjóli þar til svitinn var farinn að leka. Í dag er mér illt í rassinum.
Baksíðufrétt Moggans í morgun um að erlendu verkamenninrnir uppi á Kárahnjúkum séu illa klæddir og reyni að skrapa saman peningum fyrir hlífðarfötum kom illa við mig. Það er með eindæmum hvað allt getur verið rangt við einar framkvæmdir. Ég ætti kannski að ganga til liðs við kvenfélagið á Egislstöðum og prjóna nokkur pör af ullarsokkum. Það er bara verst hvað ég er lengi að prjóna og því ansi hætt við að sokkarnir yrðu ekki tilbúnir fyrr en í vor.
Í dag á ég afmæli. Stefán gaf mér fínustu húfu í heimi í afmælisgjöf en við völdum hana í sameiningu í Kristjaníu. Ég er búin að bíða í u.þ.b. þrjár vikur eftir að geta borið hana með góðri samvisku. Það vildi þó svo heppilega til að í dag er fremur napurt úti og dagurinn því kjörinn til að vígja nýju húfuna.
Amma og Valdi eiga líka afmæli í dag og óska ég þeim hér með til hamingju með daginn. (Það er fyndið að vera kærustupar og eiga afmæli sama dag).
Það er ekkert grín að vera skyndilega bara á einum bíl. Það er þó aðeins tímabundið vandamál, eða það skulum við vona.
Það er ágætt að einhver á heimilinu les Moggan. Annars hefði ég líklega aldrei fengið að vita af þessum blaðaskrifum.
Í dag er stúdentadagurinn og kl. 13 er boðið upp á pylsur og kók í tjaldi fyrir framan aðalbygginguna. Ég og Hrönn látum svoleiðis sko ekki framhjá okkur fara, ætlum að mæta á svæðið og gúffa eins miklu í okkur og við getum. Það höfum við nú gert í nokkur ár.
Ég þakka öllum sem sendu mér samúðarkveðjur vegna andláts Fisks. Útförin var bara nokkuð falleg. Stefán gróf holu úti í blómabeði (lesist órækt), ég setti Fisk ofaní hana og Stebbi mokaði mold aftur yfir. Fyrst ætlaði ég að hafa Fisk í kassa undan ljósaperu en hætti svo við það og setti hann bara beint í moldina svo hann myndi rotna hraðar. Það var líka fallega hjartnæm sjón að sjá appelsínugulan Fisk í brúnni mold.
Annars er það helst að frétta að mér miðar svolítið áfram í öllum þeim ákvörðunum sem ég þarf að vera að taka.
Hvað varðar framtíð mína í vetur er ég t.d. búin að finna kúrs sem mig langar að taka. Hann heitir Etnógrafía Evrópu og Hulda Proppé kennir hann. Eftir tímann í gær ræddi ég aðeins við Huldu og hún er svona líka almenileg og vill endilega reyna að hjálpa mér að gera mér mat úr kúrsinum svo hann nýtist eitthvað í tengslum við mastersmámið mitt.
Næsta skref hjá mér er því að finna bók sem sameinar það þrennt að vera etnógrafía, gerast í Evrópu og fjalla á einhvern hátt um samkynhneigð. Er erinhver sem þekkir eitthvað til á þessu sviði eða hefur einhverjar hugmyndir?