Archive for August, 2003

Spítalablogg nr.1

Wednesday, August 13th, 2003

(Ath. umsjónarmanns: Steinunn er á Sankti Jó og mun á meðan á dvölinni stendur senda SMS á Stefán sem færir þau handvirkt inn. Ekki mjög tæknilegt - en árangursríkt.)

Stóðst læknisskoðunina og er komin með nál í handlegginn. Hún fór á sinn stað í annarri stungu. Það er nú svo gott sem á pari.

Þamba te, enda kaffið með öllu ódrekkandi, les Raymond Chandler og hlusta á útvarpið hjá kallinum í þarnæsta herbergi. Sem betur fer er það stillt á rás 2 svona úr því það þarf að vera á svona rosalegu blasti.

Get ekki annað en mælt með Minjasafni Orkuveitunnar

Tuesday, August 12th, 2003

Það má vart á milli sjá hvor er meiri nörd, Stefán eða Sverrir. Ég er hér nýbúin að fá minn fyrsta túr um safnið undir leiðsögn þeirra beggja. Ég veit ekki hversu miklu fróðari ég er um tæknisögu Íslands en er þó vissulega margsfróðari um einstaka muni, s.s fílt-dúkinn sem þeim tókst loks að fjárfesta í eftir mikil harmkvæli ásamt fyrirhuguðum breytingum á safninu og sem fyrr segir, almennan nördaskap þeirra félaganna.

Meint “stærsta mynd af manni að skipta um ljósaperu á Norðurlöndum” vakti þó hrifningu mína. Hún er vel þess virði að vera skoðuð.

Kolbeinn Proppé kíkti við meðan á ferð minni um safnið stóð. Hann undi sér vel í hinu nýja tæki sem Óli Guðmunds. hefur hannað til að hafa ofan af fyrir litlum gríslingum. Gat næstum klárað þrautina en var ekki meiri maður en svo að hann hálf kenndi okkur um að hafa truflað sig svo honum fipaðist á lokasprettinum. Það var honum víst ofraun að Stefán sagði brandara. Ég verð þó að viðurkenna að ef hann hefur ekkert verið að ýkja árangur sinn er hann mun betri í þessu en við Stefán til samans. Og á endanum tókst honum svo í viðurvist vitna að klára þrautina.
Þetta litla tæki er reyndar vel þess virði að skoða og prófa.

Þessi menningarferð mín á safnið hefur bara hreint ekki verið svo galin og þetta hin besta dægrastytting. Öðrum gæti þó gengið betur en mér að verða sér úti um aukinn fróðleik á tækninni.

E.S. Ég skrifaði mig meira að segja í gestabókina!!

Óhóflega bjartsýni?

Tuesday, August 12th, 2003

Ég virðist hafa fagnað einum of snemma eftir síðustu færslu. Það að uppfæra í þessu kerfi virðist ekki ætla að verða neinn dans á rósum. En þar sem ég hef fulla trú á heilsufríkinu Páli tel ég hann hljóta að hafa einhverja lausn á vandanum.

Annars hitti ég Helgu móðir Páls fyrr í dag uppi í háskóla þar sem ég var reyna að gera eitthvað að viti í fyrsta sinn í marga daga. Tölvukerfi Háskólans var mér allt andsnúið, flækjur í prenturum og tölvur sem frusu, svo það var fínt að hitta Helgu, sem að ég held að hafi gefið mér ansi góð ráð varðandi fyrirhugað nám mitt á komandi hausti. Ég er allavega full bjartsýni um að ég sé á réttri braut.

Svo eru það sterar á morgun. Þ.e.a.s. ef ég stenst læknisskoðunina. Það er frekar öfugsnúið að þurfa að standast ýmiskonar próf til þess að mega leggjast inn á spítala. En svona er þetta nú einusinni. Það er verst að þetta umstang allt getur orðið til þess að ég verði að sitja heima á menningarnótt, ofvirk og vitlaus. En bjartsýni minni virðsast engin takmörk sett í dag, svo ég hef tröllatrú á að þetta reddist allt.

Þá er bara að fara að taka til afþreyingarefni fyrir næstu daga…

Byrjunarörðuleikar

Friday, August 8th, 2003

Jæjæ, þá er ég komin heim aftur. Það eru nú reyndar nokkrir dagar síðan ég kom heim og ég er hreinlega að hugsa um að vera ekkert segja neitt að ráði frá Neistaflugi. Það ætti að vera alveg nóg að segja að það var gaman. Gunni og Felix voru skemmtilegir að vanda, við vinirnir í hörkugóðum fíling og Hafdís gaf mér kaffi og köku. (Ég veit að þú lest þetta Hafdís, svo takk fyrir mig :) )

Hins vegar get ég sagt frá því hvað fæðingin á þessu bloggi er búin að vera erfið. Það var nefnilega ekki þrautarlaust fyrir mig að ætla að fara að blogga í nýja kerfinu sem Palli er búinn að smíða. Ég komst bara ekki inn á uppfærslusíðuna í Odda og Stefán var eiginlega farinn að gefa það í skyn að það hlyti eitthvað að vera að mér en ekki tölvunum þegar ég hringdi í hann til að fá góð ráð.

Palli gat heldur ekki hjálpað mér en hann lét nú svona fremur liggja að því að það væri tölvan og reyndi meira að segja að gefa mér leiðbeiningar til þess að kippa þessu í liðinn en ekkert gekk svo það varð úr að ég tætti upp í Þjóðarbókhlöðu og viti menn, maður gæti hreinlega haldið að ég væri búin að logga mig inn í þetta kerfi í áratugi.

Það er bara verst að mér leiðist bókhlaðan svo það verður mjög erfitt fyrir mig að rífa mig hingað bara til þess að geta bloggað. Er einhver í Kaninku - klaninu sem hefur uppfært í Odda? Þá væri nú gustuk að segja mér hvernig það er gert!