Andrés er ömurlegur og hálsinn stífur
Í gær las ég tvö Andrésblöð. Það var hrikalegt. Sögurnar höfðu hvorki upphaf né endi og voru í alla staði leiðinlegar. Annaðhvort hefur Andrés hrakað síðan ég var 8 ára eða að blöðin voru bara svona miklu vandaðri á dönsku. Efast stórlega um að þetta hafi neitt með aldur eða þroska minn að gera.
Annars er ég búin að vera ofur stíf í hálsinum í dag. Stefnan er því tekin á apótek þar sem ég hyggst fjárfesta í gelpúða sem hægt er að nota sem heitan eða kaldan bakstur.
Merkilegt hvað hálsinn á mér var lítið vandamál þar til læknirinn benti mér á að hann ætti að vera vandamál!
August 19th, 2003 at 5:24 pm
Las öll Andrésblöðin mín í fyrra og get vottað um að danski Andrés frá 8. og 9. áratugnum er hrein snilld, burtséð frá aldri og þroska.
Raunar eldast sögurnar um Mikka og Feitamúla talsvert verr en sögurnar um Andrés sjálfan og Jóakim. Og Lille Hiawatha er hrein skelfing og var alltaf.
August 19th, 2003 at 5:32 pm
Það eru beinlínis menningarspjöll að gefa Andrés út á íslensku.
August 20th, 2003 at 3:25 am
Þ.e. ég meina auðvitað: í staðinn fyrir dönsku.
August 21st, 2003 at 3:27 pm
Gott að vita að ég sé ekki algjörlega úti á þekju!