Laus!!!
Þá er ég loks laus af spítalanum. Ekki það að það hafi farið neitt illa um mig, það er bara þetta með spítala…þeir eru og verða alltaf krípí. Það er t.d.frekar krípí hvernig hendurnar á mér líta út eins og gatasigti og líklega bara vissara að vera ekkert að tjá sig neitt of mikið um það.
Ég er að drekka kaffi
. Reyndar ekki besta kaffi í heimi en það er mun betra en ógeðslegi upphitaði sósuliturinn sem mér hefur staðið til boða síðustu daga. Á eftir ætla ég að hita mér eðal-kaffi. Ó hvað það verður gaman.
Annars eiga næstu dagar að fara í það að slappa af. Það ætti að ganga með dópinu sem Lýður læknig sendi mig heim með. Svo menningarnótt verður að öllum líkindum frekar róleg hjá mér. Vona bara að Stebbi nenni að leika svolítið við mig.
August 15th, 2003 at 11:15 pm
Ef þú ert að drekka kaffið sem Stefán hellir uppá í tussulegu (já ég sagði tussulegu) kaffivélinni þá er það sannarlega vont.
August 16th, 2003 at 4:02 pm
Velkomin heim!
Og velkomin í gott kaffi í Frostaskjólinu…
…hvorki BKI versta kaffi á Íslandi né Merrild ógeðið, heldur barasta nýmalaðar Kaffitár baunir
August 17th, 2003 at 4:41 pm
Þakka Páli hlýleg orð í garð kaffisins míns - eða hitt þó heldur.
Hins vegar ætti Páll að velta því aðeins fyrir sér hvers vegna ég gef honum alltaf vont kaffi þegar hann býður sér í heimsókn. Á því kunna að vera ýmsar skýringar…