Óhóflega bjartsýni?

Ég virðist hafa fagnað einum of snemma eftir síðustu færslu. Það að uppfæra í þessu kerfi virðist ekki ætla að verða neinn dans á rósum. En þar sem ég hef fulla trú á heilsufríkinu Páli tel ég hann hljóta að hafa einhverja lausn á vandanum.

Annars hitti ég Helgu móðir Páls fyrr í dag uppi í háskóla þar sem ég var reyna að gera eitthvað að viti í fyrsta sinn í marga daga. Tölvukerfi Háskólans var mér allt andsnúið, flækjur í prenturum og tölvur sem frusu, svo það var fínt að hitta Helgu, sem að ég held að hafi gefið mér ansi góð ráð varðandi fyrirhugað nám mitt á komandi hausti. Ég er allavega full bjartsýni um að ég sé á réttri braut.

Svo eru það sterar á morgun. Þ.e.a.s. ef ég stenst læknisskoðunina. Það er frekar öfugsnúið að þurfa að standast ýmiskonar próf til þess að mega leggjast inn á spítala. En svona er þetta nú einusinni. Það er verst að þetta umstang allt getur orðið til þess að ég verði að sitja heima á menningarnótt, ofvirk og vitlaus. En bjartsýni minni virðsast engin takmörk sett í dag, svo ég hef tröllatrú á að þetta reddist allt.

Þá er bara að fara að taka til afþreyingarefni fyrir næstu daga…

Comments are closed.