Archive for August, 2003

Menningarviti á leið í menningarreisu

Friday, August 29th, 2003

Ég ætlaði að reyna að hitta á Unni Dís í dag og fór glaðbeitt beint inn í Odda. Þar frétti ég að það væri búið að flytja skrifstofuna hennar upp á Hótel Sögu. Ég fór þangað og þegar ég loksins fann staðinn þar sem Félagsvísindadeild er með skrifstofur kom ég að læstum dyrum og það svaraði mér enginn þegar ég hringdi dyrabjöllunni. Það verður því víst að bíða betri tíma að ég tali við Unni Dís.

En úr því að þetta tókst ekki fór ég í Bóksöluna og keypti bókina í Mannfræðikenningum III. Hún kostaði bara rúmann 3000 kall. Það borgar sig þó ekki að fagna ódýrum kúrsi of snemma og mér finnst alls ekki ólíklegt að nokkrar fleiri bækur eigi eftir að bætast við í fyrsta tímanum. Það er eiginlega frekar regla en undantekning.

Núna var ég að athuga hvort ég fyndi Experimentarium á netinu. Það gekk svona líka ljómandi vel og ég fann meira að segja kort sem sýnir hvernig maður kemst þangað.

Við Stefán erum nefninlega á leiðinni til Kaupmannahafnar í fyrramálið. Ó hvað ég held að það eigi eftir að verað gaman. Sverrir og Kolbrá eru reyndar búin að gefa okkur svo mörg tips um hvað við ættum helst að gera að það gæti orðið svolítið mikið að gera hjá okkur. Planið er þó einna helst það að þetta verði hin mesta menningarferð.

Það er þó aldrei að vita nema við tökum smá forskot á menninguna í kvöld og skellum okkur á opnun á einhverri sýningu á Kjarvalsstöðum. Stefán er alltaf að fá einhverja boðsmiða en við erum ekki alveg nógu dugleg að nota þá og vera menningarvitar. Það er samt greinilegt að ég á svolítið langt í land með að verða menningarviti. Ég hef nefninlega ekki hugmynd um það hver listamaðurinn er né hverskonar sýning þetta er hjá honum. Veit bara að miðarnir eru heima. Maður á náttúrulega ekki að segja frá svonalöguðu!

E.S.
Blogga frá Köben ef ég rekst á nettengda tölvu.

Heilbrigði

Thursday, August 28th, 2003

Í gær fór ég í sund og synti 800 metra. Ég fann hvernig vöðvarnir reyndu á sig og ég er ofur stolt af sjálfri mér.
Til hamingju Steinunn, haltu áfram að þróa með þér heilbrigðan lífsstíl!!!
Ef maður hrósar sér ekki sjálfur, hver verður þá til þess að gera það?!

Ég er ekki heiladauð!

Monday, August 25th, 2003

Ég hafði haft ákveðnar áhyggjur af því að mér hefði hugsanlega tekist að drepa alla gáfulega hugsun í heilanum á mér í sumar með almennri leti og sinnuleysi. Það hefur nefninlega gerst skipti eftir skipti að ég hef ekki nennt að mynda mér skoðun á hlutum og hef bara yppt öxlum við fréttum af níðingsskap ráðamanna í heiminum.

Ég hef í margar vikur helst ekki nennt að lesa annan texta en þann sem inniheldur mikið af myndum (Með þeirri undantekningu þó að spæna mig í gegnum Glataða snillinga eftir Wiliam Heinesen)

Í morgun varð þó ákveðin breyting á þessu. Ég las u.þ.b. hálfa fræðigrein! (Og eina ástæðan fyrir því að ég kláraði greinina ekki var að ég var búin að lofa mér annarsstaðar núna seinnipartinn).

Ég held þræði enn sem komið er og hef meira að segja nennt að fletta nokkrum orðum upp í orðabók til þess að skilja umfjöllunarefnið enn betur.

Víí…það er svo gaman að gera sér grein fyrir að maður sé ekki heiladauður!!!

Endurkoma Matargatanna

Saturday, August 23rd, 2003

Matarklúbburinn Matargötin komu saman eftir töluvert langt hlé í gærkvöldi. Það var þó alveg greinilegt að við höfðum engu gleymt og gátum hlaðið í okkur dýrindis krásum í fleiri fleiri klukkutíma.

Það barst til tals hvort við ættum hugsanlega að stofna skokkhóp til mótvægis. Mótvægisaðgerðir hafa jú verið svo mikið í tísku núna upp á síðkastið. Sú hugmynd fékk hinsvegar fremur dræmar undirtektir og ákveðið var að það að spila Partý spilið hliti að vera næg brennsla.

Patý spilið hafur ýmislegt til að gera sem gæti gert það að ágætu spili. Þar er hinsvegar frekar illa unnið. Við fundum eina villu í spurningunum og svo gerðist það nokkrum sinnum í sama spilinu að hægt var að nota tilvísanir í fyrri spurningar til að fá fram svör við öðrum hlutum. Kannski gleymdist að setja erfirfarandi í leiðbeiningarnar: Stokkið spjöldin vel. Við höfundarnir vorum fremur hugmyndasnauðir og notuðum því sömu hugmyndirnar oft en reyndum að breyta orðalagi eftir bestu getu.

Annars var kvöldið fínt. En nú er hún Bryndís litla farin og kemur ekki aftur meir á næstunni.

Lúffur-matur-blað

Thursday, August 21st, 2003

Í gærkvöldi kíktum við í heimsókn í róttæklingatjaldið. Það er nánar auglýst hér. Þar var Palli búinn að vera á vakt í nokkra klukkutíma. Honum var orðið fáránlega kalt. Það var reyndar fáránlega kalt í gærkvöldi. Ég fann mig t.d. knúna til að fara í göngutúr með lúffur.

Annars er ég aðallega með mat á heilanum þessa daganna. Um daginn lagði ég mikið á mig til þess að steikja mér fisk í kvöldmat. En það var hrikalega gott.
Er steiktur fiskur í raspi hugsanlega besti matur í heimi?

Á morgun koma Hrönn og Svenni. Það verður í fyrsta skipti sem ég hitti Hrönn síðan hún varð blaðamaður. Það lítur út fyrir að blaðið hafi hætt að uppfæra heimasíðuna þegar hún tók til starfa. Er það gott?

Andrés er ömurlegur og hálsinn stífur

Tuesday, August 19th, 2003

Í gær las ég tvö Andrésblöð. Það var hrikalegt. Sögurnar höfðu hvorki upphaf né endi og voru í alla staði leiðinlegar. Annaðhvort hefur Andrés hrakað síðan ég var 8 ára eða að blöðin voru bara svona miklu vandaðri á dönsku. Efast stórlega um að þetta hafi neitt með aldur eða þroska minn að gera.

Annars er ég búin að vera ofur stíf í hálsinum í dag. Stefnan er því tekin á apótek þar sem ég hyggst fjárfesta í gelpúða sem hægt er að nota sem heitan eða kaldan bakstur.

Merkilegt hvað hálsinn á mér var lítið vandamál þar til læknirinn benti mér á að hann ætti að vera vandamál!

Er að verða komin í lag

Monday, August 18th, 2003

Þessi helgi var með allra rólegasta móti. Vídeó og sjónvarpsgláp. The Bourne identity var slæm. The Saint sem sýnd var á ríkissjónvarpinu á menningarnótt var öllu verri. Eiginlega hreint skelfileg. Ég eiginlega skil ekkert í Stebba að hafa ekki bara stungið mig í bakið og farið á fyllerí. Allavega hefði ég drekt sorgum mínum hefði ég talið það óhætt ofan í alla lyfjakokteila.

Núna á lífið hjá mér að vera komið aftur í fastar skorður. Ég hef enga afsökun fyrir því að gera ekki neitt. John er meira að segja búinn að staðfesta að það líti út fyrir að það sé allt í lagi með mér.

Honum lýst þó illa á að ég fari í sjúkraþjálfun og láti losa aðeins um vöðvana í hálsinum á mér. Hann telur allar líkur á að sjúkraþjálfinn myndi merja í mér vöðvana og gera þannig illt verra. John mælir því frekar með heitum bökstrum. Það er bara einn galli á því. Allir grjónapúðarnir eru uppseldir niðri í MS-heimili. Nú set ég traust mitt á að föndurdeildin láti hendur standa fram úr ermum í vikunni og saumi púða sem aldrei fyrr.

En ætli það hljóti samt ekki að vera í lagi að láta Stefán nudda sig létt?

Laus!!!

Friday, August 15th, 2003

Þá er ég loks laus af spítalanum. Ekki það að það hafi farið neitt illa um mig, það er bara þetta með spítala…þeir eru og verða alltaf krípí. Það er t.d.frekar krípí hvernig hendurnar á mér líta út eins og gatasigti og líklega bara vissara að vera ekkert að tjá sig neitt of mikið um það.

Ég er að drekka kaffi :) . Reyndar ekki besta kaffi í heimi en það er mun betra en ógeðslegi upphitaði sósuliturinn sem mér hefur staðið til boða síðustu daga. Á eftir ætla ég að hita mér eðal-kaffi. Ó hvað það verður gaman.

Annars eiga næstu dagar að fara í það að slappa af. Það ætti að ganga með dópinu sem Lýður læknig sendi mig heim með. Svo menningarnótt verður að öllum líkindum frekar róleg hjá mér. Vona bara að Stebbi nenni að leika svolítið við mig.

Spítalablogg nr. 3

Thursday, August 14th, 2003

Kaffið í dag var ansi þunnur þrettándi. Reyndar hafði ég ekki geð í mér frekar en fyrridaginn til að athuga hvort kaffið hefði eitthvað skánað svo það var bolli númer ég-veit-ekki-hvað af Melroses. Leist heldur ekki á beinakexið né heldur að stela ostabrauði frá einhverjum sykursjúklingnum, svo muffins úr sjálfsala frá hr. Otis Spunkmeier varð fyrir valinu. Það eitt og sér segir meira en mörg orð.

Spítalablogg nr. 2

Thursday, August 14th, 2003

Ég lét setja öryggisgrindina upp öðru megin. Einhvern veginn samræmist það bara ekki hugmyndum mínum um áhyggjulausan nætursvefn að sofa í 60-70 cm breiðu, frístandandi rúmi.