Málningarvinna og tiltektir
Stefán málaði á við fjóra í gær og árangurinn er þessi sallafíni gangur sem við eigum núna. Þar sem málningin er bara rétt þornuð erum við ekki enn búin að hengja neitt upp á veggina svo það bergmálar svolítið. Ég er þó ekki frá því að það hafi lagast smá þegar ég setti símastólinn á sinn stað. Ég hinsvegar tók til og skrúbbaði eins og ödipus. Það sést samt varla högg á vatni.
Það liggur svo fyrir að fyrir miðnætti þurfum við að vera búin að taka til í “alt muligt” / drasl herberginu því Hrönn og Svenni eru að koma heim frá Kanada og ætla að gista hjá okkur á Mánagötunni fram yfir brúðkaup. Ó hvað það verður mikil vinna.
Ég vona að búðhjónunum tilvonandi gangi allt í haginn. Ég fann einhverjar eldgamlar glósur með handskrift Jóhönnu uppi í hillu í tiltektinni í gær. Ég veit samt ekki hvort það er viðeigandi að skila þeim í brúðkaupsveislunni. Gæti náttúrulega pakkað þeim inn með gjöfinni en hef efasemdir um að það yrði smekklegt.