Heimspekilega þenkjandi gæðaköttur?

Þambara vambara þræsingssprettir
því eru hér svo margir kettir?
Agara gagara úra rænum
illt er að hafa þá marga á bænum

Þannig kvað snillingurinn Æri-Tobbi.

Eftir að hafa jafnað mig á mesta áfallinu eftir að ókunnur köttur, sem vappaði um svefnherbergið, vakti mig í nótt hef ég verið að tala mig upp í það að þarna hafi hugsanlega verið jafn gáfaður köttur og Markús Árelíus á ferð. En Helgi Guðmundsson skrifaði snilldarbækur um þann kött. Ef svo hefur verið hefur þarna líklega bara verið hið mesta gæðablóð á ferð, í heimspekilegum vangaveltum um lífið og tilveruna.

En ef hann ætlar að messa við fisk er mér að mæta!!!

Og svo held ég að við ættum að reyna að muna að loka allavega stofuglugganum, því þó svo að þarna sé hugsanlega kominn nýr Markús Árelíus vil ég helst ekki fara að gera það að venju að vakna með jafn óþyrmilegum hætti margar nætur.

Comments are closed.