Ótrúleg afköst

Mætti í Þjóðarbókhlöðuna og er búin að vera að tölvunördast hér í um 2 klukkutíma. Hef náð að gera nokkra praktíska hluti milli þess sem ég les annarramanna blogg. Ég náði t.d. að ganga frá minnispunktum frá fundi gærkvöldsins, skoða heimasíðu norska MS-félagsins og senda vini mínum link á hana en hann er að flytja til Noregs.

Það er merkilegt hvað heimasíður MS-félaga geta verið leiðinlegar. Vissara að setja enga linka hér.

Núna er ég að hugsa um að fara og finna mér nokkra reyfara og fara með þá heim til mín, skríða upp í sófa og borða snakk enda búin að vera alveg ótrúlega dugleg í dag.

…allavega á mælikvarða iðjuleysingjans.

Comments are closed.