Archive for July, 2003

Sumir reyna að bera sig mannalega!!

Tuesday, July 29th, 2003

Brúðkaupsveisla Jóhönnu og Valdimars var með eindæmum vel lukkuð…og ekki spillti maturinn fyrir. Til hamingju með að vera svona frábær!

En nú styttist í það að ég leggi land undir fót og skreppi austur eina ferðina enn í sumar. Neistaflug here I come! Stefán verður reyndar skilinn eftir í þetta skiptið enda verður einhver að verða eftir til þess að halda söfunum í borginni opnum. Ó hvað ég held að hann eigi eftir að sakna mín þó svo að hann reyni að bera sig mannalega.

Málningarvinna og tiltektir

Wednesday, July 23rd, 2003

Stefán málaði á við fjóra í gær og árangurinn er þessi sallafíni gangur sem við eigum núna. Þar sem málningin er bara rétt þornuð erum við ekki enn búin að hengja neitt upp á veggina svo það bergmálar svolítið. Ég er þó ekki frá því að það hafi lagast smá þegar ég setti símastólinn á sinn stað. Ég hinsvegar tók til og skrúbbaði eins og ödipus. Það sést samt varla högg á vatni.

Það liggur svo fyrir að fyrir miðnætti þurfum við að vera búin að taka til í “alt muligt” / drasl herberginu því Hrönn og Svenni eru að koma heim frá Kanada og ætla að gista hjá okkur á Mánagötunni fram yfir brúðkaup. Ó hvað það verður mikil vinna.

Ég vona að búðhjónunum tilvonandi gangi allt í haginn. Ég fann einhverjar eldgamlar glósur með handskrift Jóhönnu uppi í hillu í tiltektinni í gær. Ég veit samt ekki hvort það er viðeigandi að skila þeim í brúðkaupsveislunni. Gæti náttúrulega pakkað þeim inn með gjöfinni en hef efasemdir um að það yrði smekklegt.

Heimspekilega þenkjandi gæðaköttur?

Monday, July 21st, 2003

Þambara vambara þræsingssprettir
því eru hér svo margir kettir?
Agara gagara úra rænum
illt er að hafa þá marga á bænum

Þannig kvað snillingurinn Æri-Tobbi.

Eftir að hafa jafnað mig á mesta áfallinu eftir að ókunnur köttur, sem vappaði um svefnherbergið, vakti mig í nótt hef ég verið að tala mig upp í það að þarna hafi hugsanlega verið jafn gáfaður köttur og Markús Árelíus á ferð. En Helgi Guðmundsson skrifaði snilldarbækur um þann kött. Ef svo hefur verið hefur þarna líklega bara verið hið mesta gæðablóð á ferð, í heimspekilegum vangaveltum um lífið og tilveruna.

En ef hann ætlar að messa við fisk er mér að mæta!!!

Og svo held ég að við ættum að reyna að muna að loka allavega stofuglugganum, því þó svo að þarna sé hugsanlega kominn nýr Markús Árelíus vil ég helst ekki fara að gera það að venju að vakna með jafn óþyrmilegum hætti margar nætur.

Undur

Sunday, July 20th, 2003

Ég verð að viðurkenna að ég er pínulítið framlág eftir gærkvöldið. Svo verð ég líka að viðurkenna að mér finnst krikket bráðfyndin íþrótt. Ég er samt ekki viss um að ég myndi nenna að eyða miklum tíma í að horfa á hana. Ég held að það sé samt skömminni skárra en að horfa á fótbotla…er samt ekki alveg viss.

* * *

Sjómvarpsfjarstýringin virðist vera komin í lag aftur. Þó veit ég ekki vil þess að nokkur hafi gert neitt til að laga hana. Svona gerast undrin.

Miðaldra kartafla

Thursday, July 17th, 2003

Sjónvarpsfjarstýring heimilins er að gefa upp öndina. (Ég er eiginlega hálf hissa á að Stefán hafi ekkert fjallað um það). Fyrst hélt ég bara að batteríin væru að verða búin og skipti um batterí en ekkert breyttist. Svo núna þarf maður að standa beint fyrir framan sjónvarpið og mjög nálægt því til þess að skipta um stöðvar eða skoða textavarpið. Frekar pirrandi á heimili þar sem eðal sófakartöflur búa en hefur þó að sama skapi þann kost að Stefán nennir ekki að rása jafn mikið.

* * *

Ég þakka Svalbaun fyrir að birta Neistaflugsdagskrána. Ég hafði einmitt verið að velta því fyrir mér hverjir myndu spila heima. Ég ætla að skella mér austur ásamt mömmu og systkynum mínum. Stebbi verður skilinn eftir í bænum. Hann þarf að vinna fyrir heimilinu.

Í augnarblikinu hef ég minnstan áhuga á böllunum. Það er aldrei að vita nema ég kynni mér einu sinni það sem er á dagskránni fyrir hádegi.

Þá þurfum við greinilega ekki að velkjast í neinum vafa um það að ég er orðin miðaldra.

Ótrúleg afköst

Tuesday, July 15th, 2003

Mætti í Þjóðarbókhlöðuna og er búin að vera að tölvunördast hér í um 2 klukkutíma. Hef náð að gera nokkra praktíska hluti milli þess sem ég les annarramanna blogg. Ég náði t.d. að ganga frá minnispunktum frá fundi gærkvöldsins, skoða heimasíðu norska MS-félagsins og senda vini mínum link á hana en hann er að flytja til Noregs.

Það er merkilegt hvað heimasíður MS-félaga geta verið leiðinlegar. Vissara að setja enga linka hér.

Núna er ég að hugsa um að fara og finna mér nokkra reyfara og fara með þá heim til mín, skríða upp í sófa og borða snakk enda búin að vera alveg ótrúlega dugleg í dag.

…allavega á mælikvarða iðjuleysingjans.

Samsæri?

Thursday, July 10th, 2003

Það er alveg ótrúlegt hversu fáar bækur Stefán kom með heim í gær. Ég er reyndar að þróa með mér samsæriskenningu þar sem ég gruna hann um hafa hirt mun fleiri bækur en komið þeim í geymslu einhvesstaðar annarsstaðar. Hann gæti jafnvel hafa grafið þær í jörð eins og Alli gróf klámblöðin forðum og sem einhverntíma áður hefur verið minnst á á þessari síðu.

Svo er það alveg merkilegt hvað hann hefur mikla trú á góðmennsku minni þegar kemur að fótbolta.

Það fjölgar í vinahópnum

Wednesday, July 9th, 2003

Bryndís er orðin andamamma. Það er skemmtilegt. Mér finnst eiginlega hálf leiðinlegt að geta ekki skroppið að heimsækja hana og ungana. Því miður get ég ekki gefið ráð varðandi uppeldi á svona ungum en ég veit að Jón frændi hefur reynsluna sem Bryndís er að leyta að. Ég veit ekki hversu sjóaður hann er orðinn í notkun tölvupósts svo það gæti verið betra að hringja í hann og leyta ráða. Ég mæli allavega með því.

Vona bara að þetta gangi vel. Bíð eftir nánari fréttum.

* * *

Ég er hrædd um að áður en þessi dagur hefur runnið sitt skeið verði heimili mitt orðið fullt af bókum. Stefán er að hjálpa afa sínum að fara í gegn um gamlar bækur og það þýðir aðeins það að góður slatti af bókunum á eftir að lenda á mínu heimili. Ég verð meira að segja að játa það á mig að hafa stuðlað að því að nokkrar bækur yðru fluttar á Mánagötuna. Ég er svolítið hrædd um að þatta muni enda með ósköpum

Ég

Tuesday, July 8th, 2003

… fékk óvænt bréf frá Stefáni Jónssyni. Það var gaman.

… er sérlega ánægð með bakþanka Kristínar Helgu Gunnarsdóttur í dag.

… er ekki eins ánægð með stöðu fjármála á heimilinu. En það reddast.