Af ýmiskonar mótum Eins og

Af ýmiskonar mótum

Eins og Stefán hefur líst svo rækilega hef ég nú loksins skilið hvaðan lagleysi mitt er komið. Ég verð þó að segja að ég held að ég sé betri en gengur og gerist í ættinni í því að muna texta og svo get ég nú yfirleitt verið að syngja á réttum stað í laginu þó svo að ég hitti ekki alltaf á réttan tón.

En fleiri uppgötvanir en sú að komast að því hvert lagleysið ætti rætur sínar að rekja voru gerðar. Fyrir ættarmótið þekkti ég u.þ.b. 10 úr föðurættinni. Núna veit ég að ættingjarnir eru talsvert fleiri, allavega hef ég séð mun fleiri og aldrei að vita nema ég myndi þekkja nokkra aftur á götu.

Annars fór ég á annarskonar mót í gærkvöldi sem að hluta hafði sum einkenni ættarmóts. Við Stefán kíktum aðeins inn á Fjörukrána þar sem Víkingar og Ásatrúarmenn voru með einhverskonar lokahóf eftir vel heppnaða Víkingahátíð. Vá hvað þar var mikið af skrítnu fólki!!! Þar var reyndar líka mikið af skemmtilega skrítnu fólki. Ég verð eiginlega að fara að verða mér úti um svona víkingamúnderingu til að skera mig ekki svona hrikalega úr hópnum. Ég er vissum að ég tæki mig ansi vel út í svoleiðis kjól. Stebbi þarf líka að koma upp síðara hári og síðara skeggi. (Ættingjar hans yrðu reyndar ekki alveg eins ángæðir með það og ég).

Núna finnst mér eiginlega alveg ferlegt að vera að fara að fá stera og vera þar með innilokuð á spítala á á sumarblóti Ásatrúarfélagsins sem haldið verður á fimmtudagskvöldið.

Comments are closed.