Maðurinn er greinilega orðinn klikk!

Maðurinn er greinilega orðinn klikk!

En það sem verra er, er að maðurinn er sambýlismaður minn. Það þarf ekki annað en að lesa þetta til þess að gera sér grein fyrir því. Nú dettur mér ekki í hug að draga það í efa að það sé vont að brjóta á sér tærnar - en það sem einn maður getur kvartað! Ég stend með Bjarti í þessu máli. Ég verð þó að taka fram að þetta er allt sérlega fyndið í ljósi þess hvað maðurinn hefur getað gert mikið grín af bólgnu tánni hennar Bryndísar.

Annars ákvað ég að rífa sjálfa mig upp á rassgatinu og gera eitthvað gáfulegt svo ég mætti hress á semínar sem haldið var á frönsku. Ástandið á heimilinu er þó ekki enn orðið það slæmt að við hjónaleysin séum bæði orðin klikk heldur var erindi Michèle Riot-Sarcey þýtt yfir á íslensku jafnóðum. Franskan mín er víst ekki upp á marga fiska en ég náði þó að greina einstaka orð og hugtök í erindinu. Ótrúlega klár! Nú verð ég svo bara að einhenda mér í það verk að lesa Hitt kynið. Þó svo að Ian Rankin sé skemmtilegur höfundur er hann ekki það skemmtilegur að það sé hægt að lesa hann endalaust.

Comments are closed.