Archive for June, 2003

Kannske

Monday, June 30th, 2003

Það eru fá orð sem ég hef getað látið fara jafn mikið í taugarnar á mér og orðið kannske. Þó veit ég innst inni að það hlýtur að vera réttara að segja kannske en kannski. Maður veit jú aldrei hvað kann að ske. En óbeit mín á þessu orði er þvílík að á sínum tíma gafst ég upp við að lesa Alaister McLean vegna þess að bölvaður þýðandinn notaði orðið kannske í tíma og ótíma. Ef ég man rétt píndi ég mig í gegn um Byssurnar í Navaróne og hennti svo bókinni pirruð frá mér og ákvað að reyna ekki að lesa meira af þessu, allavega ekki á íslensku.

Annars eru ekki mjög margir sem nota orðið kannske svo dagsdaglega er ég blessunarlega laus við að heyra það. Karl Th. Birgirsson slær reyndar um sig með því en einhvernvegin er eins og að ég hafi alltaf verið orðin pirruð á einhverju öðru í skrifum hans áður en ég hef getað farið að einbeita mér að því að hann noti þetta skelfilega orð.

* * *

Skemmtu þér vel í fríinu Jóhanna! Það er heppilegt að við erum að fara í frí á sama tíma því þá þarf ég ekki að hafa ofanaf fyrir þér á meðan :)

Og við svífum um loftið…

Sunday, June 29th, 2003

Helgin hefur ekki verið alveg jafn góð og helst hefði verið kosið. Veðurguðirnir sviku mig algjörlega um sól svo ég gat ekki legið ofvirk úti í sólbaði. -Þeir fóru reyndar líka frekar illa með Stefán sem á nú eftir að raka fullan garð af blautu grasi.

Reyndar náði ég ekki að verða neitt rosalega ofvirk því læknirinn á St. Jó ákvað að dæla í mig svefnlyfjum og róandi svo mér hefur svolítið fundist ég hafa verið svífandi á bleiku skýi. En nú gegnur það víst ekki lengur svo ég verð að taka mig á aog reyna að sofa eins og venjulegt fólk, án hjálparmeðala.

Öll góðu plönin hans Stebba um að stjana við mig um helgina fuku eitthvað út í buskan. Það er fúlt því það er ekki svo oft sem læknar mæla með því að stjanað sé við mann. Drengurinn verður þó að fá að eiga það að hann hefur sýnt gríðarlegt umburðarlyndi gagnvart vinum (sem ég by the way vona að ég eigi ekki eftir að horfa á framar).

Vinir við athygglisbresti Þá styttist

Tuesday, June 24th, 2003

Vinir við athygglisbresti

Þá styttist óðfluga í að ég fari á spítala. Úgh!

Þóra mágkona mín er búin að gera sitt til að gera ástandið á heimilinu bærilegt þegar ég kem út aftur, reyndar algerlega án þess að vita af því. Móðir hennar var svo góð að lána mér Friends spólurnar hennar svo að þegar ég kem heim af spítalanum ofvirk og ekki fær um neinskonar mannleg samskipti get ég lokað mig inni og horft á Friends sem eru fullkomnir fyrir einstaklinga sem þjást af einbeitingarskorti. Það þarf nefninlega ekki mikla athyggli til að fylgjast með þáttunum. Takk Þóra :)

Það er bara verst að ég er strax orðin svöng við tilhugsunina að lifa á spítalamat. Ekki það að ég fái vatn í munnin heldu þvert á móti það að ég sé ekki fram á að geta borðað magafylli mína í þrjá daga. Það er eins gott að Stefán standi sig í stykkinu við að bera í mig allskonar kræsingar.

Af ýmiskonar mótum Eins og

Monday, June 23rd, 2003

Af ýmiskonar mótum

Eins og Stefán hefur líst svo rækilega hef ég nú loksins skilið hvaðan lagleysi mitt er komið. Ég verð þó að segja að ég held að ég sé betri en gengur og gerist í ættinni í því að muna texta og svo get ég nú yfirleitt verið að syngja á réttum stað í laginu þó svo að ég hitti ekki alltaf á réttan tón.

En fleiri uppgötvanir en sú að komast að því hvert lagleysið ætti rætur sínar að rekja voru gerðar. Fyrir ættarmótið þekkti ég u.þ.b. 10 úr föðurættinni. Núna veit ég að ættingjarnir eru talsvert fleiri, allavega hef ég séð mun fleiri og aldrei að vita nema ég myndi þekkja nokkra aftur á götu.

Annars fór ég á annarskonar mót í gærkvöldi sem að hluta hafði sum einkenni ættarmóts. Við Stefán kíktum aðeins inn á Fjörukrána þar sem Víkingar og Ásatrúarmenn voru með einhverskonar lokahóf eftir vel heppnaða Víkingahátíð. Vá hvað þar var mikið af skrítnu fólki!!! Þar var reyndar líka mikið af skemmtilega skrítnu fólki. Ég verð eiginlega að fara að verða mér úti um svona víkingamúnderingu til að skera mig ekki svona hrikalega úr hópnum. Ég er vissum að ég tæki mig ansi vel út í svoleiðis kjól. Stebbi þarf líka að koma upp síðara hári og síðara skeggi. (Ættingjar hans yrðu reyndar ekki alveg eins ángæðir með það og ég).

Núna finnst mér eiginlega alveg ferlegt að vera að fara að fá stera og vera þar með innilokuð á spítala á á sumarblóti Ásatrúarfélagsins sem haldið verður á fimmtudagskvöldið.

Staðhæfingar um Finna II -

Friday, June 20th, 2003

Staðhæfingar um Finna II - Óeðlilegir snyrtipinnar

Alveg síðan úti í Finnlandi er ég búin að vera að velta því fyrir mér hvort ég sé að misskilja eitthvað eða hvort Finnar séu bara svona hrikalega þrifalegir. En þannig er mál með vexti að inni á nánast hvaða klósetti sem er -og þá skiptir engu hvort maður er á ódýru kaffihúsi eða fínu hóteli - er lítil handsturta við hliðina á klósettinu sem virðist ekki æltuð til neins annars en neðanþvotta. Svo ég hef verið að velta því fyrir mér hvort Finnar taki sér örstutt bað að neðan í hvert skipti sem þeir hafa gert þarfir sínar - eða hvort ég sé að misskilja eitthvað hrapalega.

Í bleikum bol Ég verð

Thursday, June 19th, 2003

Í bleikum bol

Ég verð að viðurkenna að ég læt hafa svo mikil áhrif á mig að ég er í bleikum bol. Hann er reyndar ekki nógu dökk-bleikur til að geta verið í sama bleika litnum og femínistafélagið er svo hrifið af. Sjálf er ég efins um þessa bleiku hugmynd. Ég hef nefninlega svolitlar áhyggjur af því að aðalatriði málsins - sem er jafnrétti kvenna og karla - gleymist í umræðunni um það hvort allir séu í réttum bleikum einkennisbúningi.

En hvað um það. Ég óska öllum jafnréttissinnum nær og fær til hamingju með daginn og vona að nú sé komið að því að við stígum skrefið til fulls og drífum í því að koma á jafnréttisþjóðfélagi!!!

Staðhæfingar um Finna I -

Monday, June 16th, 2003

Staðhæfingar um Finna I - Deleringar Bryndísar Schram

Jæja, þá er ég komin heim frá Finnlandi. Þetta var stutt en ánægjuleg dvöl. Fyrirfram hafði ég haft svolitlar áhyggjur af því hvernig Finnarnir væru eftir að hafa lesið skelfilegar lýsingar Bryndísar Schram á þjóðinni. Sé menningarmunur á Helsinki og Turku ekki þeim mun meiri verð ég að segja að ég og Bryndís höfum verulega ólíkar skoðanir á því sem telst snyrtilegt og vinalegt. Allir Finnarnir sem ég sá voru vinalegir og þeir voru hjálpsamir og kurteisir svo ég blæs á skrif Bryndísar í tímaritið Birtu. Konan er líklega bara frústereruð yfir því að geta ekki jammað lengur með fína og frægafólkinu í Washington.

Afbrýðisöm út í mannin með

Thursday, June 12th, 2003

Afbrýðisöm út í mannin með mikilmennskubrjálæðið!

Um daginn fór ég á Vitabar ásamt Stefáni og nokkrum fleirum. Það er svosem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þar hitti ég frænku mína sem ég haf aldrei áður séð og vissi reyndar ekki að væri til fyrr en hún kynnti sig fyrir mér. Yfir því er auðvitað ekki hægt að kvarta og alltaf gaman að sjá hversu stóran frændgarð maður á. Mér fannst hinsvegar svolítið leiðinlegt að hún þekkti mig í gegnum Stefán sem hún þekkti þó ekkert. Það hafði bara einhver bennt henni á að krullaði maðurinn sem væri stundum í sjónvarpinu væri kærasti frænku hennar. Og þar sem þessi frænka mín sat á Vitabar og var að fara yfir lista með þátttakendum á ættarmótinu sem ættin mín stendur fyrir um þar næstu helgi rak hún augun í nöfnin okkar og fattaði að þarna væri kominn þessi frægi kærasti frænku hennar…

Ég verð að viðurkenna að ég er pínulítið svekt. Ég vil ekki vera viðhengi sem er þar að auki skilgreint sem slíkt. Ég held samt að ég sé mest svekt út í sjálfa mig fyrir að vera pínulítið afbrýðissöm út í mannin með mikilmennskubrjálæðið. Ég er samt ekki frá því að mikilmennskubrjálæðið hafi hjaðnað með bólgunni í tánni margumtöluðu.

Annars hef ég ekki tíma til að vera mikið að velta mér upp úr þessu því ég er upptekin af því að hlakka til að fara til Finnlands á morgun!

Maðurinn er greinilega orðinn klikk!

Friday, June 6th, 2003

Maðurinn er greinilega orðinn klikk!

En það sem verra er, er að maðurinn er sambýlismaður minn. Það þarf ekki annað en að lesa þetta til þess að gera sér grein fyrir því. Nú dettur mér ekki í hug að draga það í efa að það sé vont að brjóta á sér tærnar - en það sem einn maður getur kvartað! Ég stend með Bjarti í þessu máli. Ég verð þó að taka fram að þetta er allt sérlega fyndið í ljósi þess hvað maðurinn hefur getað gert mikið grín af bólgnu tánni hennar Bryndísar.

Annars ákvað ég að rífa sjálfa mig upp á rassgatinu og gera eitthvað gáfulegt svo ég mætti hress á semínar sem haldið var á frönsku. Ástandið á heimilinu er þó ekki enn orðið það slæmt að við hjónaleysin séum bæði orðin klikk heldur var erindi Michèle Riot-Sarcey þýtt yfir á íslensku jafnóðum. Franskan mín er víst ekki upp á marga fiska en ég náði þó að greina einstaka orð og hugtök í erindinu. Ótrúlega klár! Nú verð ég svo bara að einhenda mér í það verk að lesa Hitt kynið. Þó svo að Ian Rankin sé skemmtilegur höfundur er hann ekki það skemmtilegur að það sé hægt að lesa hann endalaust.

Æði rennur á Stefán! Í

Wednesday, June 4th, 2003

Æði rennur á Stefán!

Í gærkvöldi rann þvílíkt tiltektar og skipulagningar æði á Stefán og hann hóf stórar og miklar breytingar á skrifstofunni/gestaherberginu. Ég vona bara að hann endist í þessum ham þar til helstu húsgögn verða komin á sinn stað. Það er ákveðin ástæða til bjartsýni þar sem Palli er ekki í bænum og Stebbi betur ekki hangið jafn mikið með honum. Við skulum samt sjá hvað gerist í kvöld.

Annars var fínt fyrir austan. Ég ætla samt ekki að vera að þreyta fólk með því að endurtaka allt það sem Stefán sagði um ferðina. Fólk getur bara lesið það hjá honum. Ég verð samt að bæta því við að Svartfuglsegg eru hreint ekki góð. Mér finnst bragðið á rauðunni (og hún er nánast rauð) allt of sterkt.