Fram þjáðir menn…dí rí dí

Fram þjáðir menn…dí rí dí dú

Í gær söng ég Nallann. Svo söng ég aftur Nallann. Eiginlega ætti maður að syngja Nallann miklu oftar. Ég er nefninlega alveg hand viss um að það sé mannbætandi.
1. maí var fínn og Rauður 1.maí var bara alveg ágætur. Hljómsveitin Bardukha er algjör snilld.

Annars forskalaðist ég í göngunni. Þegar ég var búin að vera innandyra í tæpa tvo tíme eftir hana og búin að drekka tvo bolla af heitu kaffi en hélt samt áfram að skjálfa jafn mikið tók mamma til sinna ráða og skipaði mér að koma heim með sér svo ég gæti farið í bað (ég á bara sturtu). Ó hvað það var gott að að finna líkaman lifna aftur við í heitu baðinu. Þetta sýndi svo sannarlega að það er gott að hlusta á mæður sínar.

Comments are closed.