Archive for May, 2003

Það er aldeilis… …hingað er

Tuesday, May 27th, 2003

Það er aldeilis…

…hingað er ég nefninlega komin. Og segið svo ekki að það geti ekki alveg borgað sig að taka sér smá blogg-pásu.

Annars er fátt af mér að frétta. Var þó að ganga frá því að fara ásamt Lonni vinkonu minni í MS-félaginu á fund í Finnlandi. Það verður gaman því ég hef aldrei komið til Finnlands.

Styttri ferð er þó fyrirhuguð á undan en þá ætla ég ásamt mömmu og Stebba að skella mér heim á æskustöðvarnar. Það verður vonandi gaman. Það er þó pínulítið hætt við því að ég sé búin að byggja upp of miklar væntingar fyrir ferðina.

Úff, það er svo langt síðan ég hef skrifað eitthvað að ég er alveg búin að fá nóg í bili.
Over and out!

Og hingað er ég komin.

Tuesday, May 27th, 2003

Og hingað er ég komin.

Hvað varð um grálúðuna? Ekki

Tuesday, May 6th, 2003

Hvað varð um grálúðuna?

Ekki féttirnar voru brilllíant. Annavega þetta með grálúðuna hans Halldórs -eða að ég er búin að eyða of mörgum klukkutímum í lestur skólabóka!

Fram þjáðir menn…dí rí dí

Friday, May 2nd, 2003

Fram þjáðir menn…dí rí dí dú

Í gær söng ég Nallann. Svo söng ég aftur Nallann. Eiginlega ætti maður að syngja Nallann miklu oftar. Ég er nefninlega alveg hand viss um að það sé mannbætandi.
1. maí var fínn og Rauður 1.maí var bara alveg ágætur. Hljómsveitin Bardukha er algjör snilld.

Annars forskalaðist ég í göngunni. Þegar ég var búin að vera innandyra í tæpa tvo tíme eftir hana og búin að drekka tvo bolla af heitu kaffi en hélt samt áfram að skjálfa jafn mikið tók mamma til sinna ráða og skipaði mér að koma heim með sér svo ég gæti farið í bað (ég á bara sturtu). Ó hvað það var gott að að finna líkaman lifna aftur við í heitu baðinu. Þetta sýndi svo sannarlega að það er gott að hlusta á mæður sínar.