Archive for April, 2003

Það er fjör! Þungu fargi

Monday, April 28th, 2003

Það er fjör!

Þungu fargi er af mér létt. Ég er búin að skila rannsóknarskýrslunni sem er búin að vera að valda mér höfuðverk síðustu vikuna. Meira að segja svo miklum að ég skrópaði í síðustu laugardagsmótmæli. Ég held að þetta séu fyrstu laugardagsmótmælin frá upphafi sem ég mæti ekki á en hingað til hefur ekki einu sinni hiti og kvef getað stöðvað mig frá því að kíkja. Sæluríki frísins er þó langt frá því að vera í höfn. Var að fá í hendurnar heimapróf sem ég get dundað mér við að taka þessa viku. Já það er fjör!

Skúffulaði, skúffulaði Á morgum verður

Saturday, April 19th, 2003

Skúffulaði, skúffulaði

Á morgum verður gaman. Þá fæ ég páskaegg í morgunmat.

Svo eiga allir að mæta á mótmælin við Stjórnarráðið á eftir (kl.14).

Jamm

Stríðið er því miður ekki

Thursday, April 10th, 2003

Stríðið er því miður ekki búið!

Þrátt fyrir það að sumir séu búnir að ákveða að ekki sé ástæða til þess að mótmæla stríðinu í Írak lengur eru sem betur fer aðrir sem eru í hjarta sínu meiri friðarsinnar og vita að það er rétt að andæfa öllum stríðum, alltaf. Líka þegar hugsanlega er hægt að segja að “okkar lið” sé að vinna.

Allir friðarsinnar vita að það vinnur enginn í stríði. Friðarsinnar vita líka að þó svo að ráðamenn og fjölmiðlar segi að stríðinu sé lokið þarf það ekki að þýða að almennir borgarar séu hættir að líða fyrir stríðsaðgerðirnar.

Vegna alls þessa fannst mér mjög ánægjulegt að fá tölvupóst í morgun með eftirfarandi skilaboðum:

12. apríl nk. kl.21.00 munu allir mótmæla með að slökkva á öllum
rafmagnstækjum, og kveikja á kerti á götum úti í 10 mínútna þögn til
heiðurs látnum í Írak.

Í öllum heiminum !!!

Ekki gleyma að senda þetta áfram á alla sem þú þekkir, til að rödd heimsins
heyrist í þögninni

Þetta mun ég svo sannarlega gera og vona að sem flestir verði með mér í þessari aðgerð!

Góður hádegismatur er það besta

Wednesday, April 9th, 2003

Góður hádegismatur er það besta í heimi!

Ekki það að ég ætli að fjalla neitt nánar úm hádegismat hér. Mér fannst bara nauðsynlegt að koma þessu að ef einhver væri ekki viss.

Í gær tók ég persónuleikaprófið sem segir manni hvaða land maður er. Það náði þó aldrei hingað inn á síðuna, heldur komu bara einhverjir errorar. Það var kannski bara best. Ég varð nefninleg það fúla land Sviss. Ég lýsi hér með frati á þetta próf.

Áðan sagði Stefán mér hversu mikla aukafjárveitingu Bandaríkjaþing hefði samþykkt að láta renna í Íraksstríðið. Ég skildi töluna ekki alveg. Veit bara að það voru rosalega mörg núll í henni. -Þetta er náttúrulega klikkun! Það hefði verið mun nær að nota þessa peninga til að búa til heilbrigðiskerfi í BNA. -Eða Írak. Eða bara að eyða peningunum í nánast hvað sem er annað.

Ég er einn ökuþór! Ég

Sunday, April 6th, 2003

Ég er einn ökuþór!

Ég var bara ótrúlegur snillingur við að keyra Neista nýrrar aldar í gær. Eftir að bíllinn var búinn að drepa þónokkuð oft á sér (en hann drepur eiginlega alltaf á sér þegar stigið er á bremsuna-sem maður þarf að gera frekar oft innan borgarmarkanna) var ég orðin mjög góð í að koma honum í gagn aftur án þess að á nokkru tæki eftir neinu skrýtunu við aksturslagið. Það hefði helst verið að aðrir sem staddir voru í umferðinni á sama tíma og ég hafi velt því fyrir sér hversvegna ég væri alltaf að kveilja og slökkva á ljósunum.

Stefán er þunnur. Ég vorkenni honum ekki!

Egill Helgason setti að mínu mati met í að vera með leiðinlegann og óspennandi þátt í dag. Það var ágætt, því þá gat ég mjútað sjónvarpið og reynt að skrifa ritgerð í staðinn. Það gekk samt ekki vel.

Ágætis dagur! Ég er ekki

Saturday, April 5th, 2003

Ágætis dagur!

Ég er ekki fjarri því að þetta sé bara búinn að vera hinn ágætasti dagur í dag. Hann byrjaði hægt en tók þó á sig smá panik vinkil þegar mér var bennt á að líklega hefði ég gleymt skattaskýrslunni minni í Odda. Svo þangað var brunað og hún sótt. Ég þakka Þuru kærlega fyrir að láta mig vit a af þessu.

Klukkan 14 voru mótmæli as usual. Vona bara að við komum ekki til með að þurfa að standa þarna aftur en það kemur þó ekki til greina að hætta fyrr en stríðinu er lokið. Gneistinn tók mynd af mér eins og vanalega. Ég er að verða reynd fyrirsæta vegna þessa brölts.

Það versta er að núna er ég komin með “ont i maven”. Vona að þetta sé bara smá stress sem lagist með almenilegum kvöldverði hjá mömmu gömlu. Svo er spurning hvort maður leggji í eitthvað djamm með Jónssyni í kvöld?!

En núna er bara að byggja í sig kjark og stökkva upp í Neistann hans Stefáns. Kolbeinn er á mínum bíl svo ég verð að notast við Neistann. Hann drepur á sér á hverjum ljósum. Vona að ég verði jafn dugleg og Stefán við að koma honum aftur í gang. Segi kannski frægðarsögur af því á morgun.

Sólveig Pétursdóttir var bara að

Friday, April 4th, 2003

Sólveig Pétursdóttir var bara að tapa

Í hádeginu fór ég á fund Stígamóta með stjórnmálamönnum í Hlaðvarpanum. Sólveig Pétursdóttir var hræðilega hol og leiðinleg. Það var nánast fyndið. Það hefði samt verið enn fyndnara ef hún hefði talað á eftir Kolbrúnu Halldórsdóttir.

O…það er leiðinlegt að bíða eftir símtölum. Sérstaklega þegar maður veit ekki hver það er sem ætlar að hringja í mann en veit að hann ætlar að gera það.

Æti ég og Palli flytjum saman með vorinu?

Kolbeinn Óttarsson Proppé. Þú

Thursday, April 3rd, 2003


Kolbeinn Óttarsson Proppé. Þú ert jarðbundinn hugsjónamaður, sem kann að
skemmta sér þegar færi gefst.


Taktu “Hvaða frambjóðandi Vinstri - grænna ert þú” prófið

Múhaha!!!

* * *

Mér skilst að það sé nauðsynlegt að horfa á Djúpu laugina á morgun. Það er reyndar óvenjulegt að það teljist nauðsyn.

Seldi Stefán sál sína fyrir

Wednesday, April 2nd, 2003

Seldi Stefán sál sína fyrir Kínarúllu?

Stefán hringdi áðan. Hann stakk upp á því að við myndum borða á Café Kúltúre. Um daginn bloggaði hann um að hann væri tilbúinn til að leika í augslýsingum til að auka heimilistekjurnar. Mér finnst samt að þá hefði hann frekar átt að fara með mig á Humarhúsið.