Það er gott að vera í góðum gír
Pönkarinn er í góðum gír. Það er gott. Annars held ég að feministar á Íslandi séu í ágætis gír þessa dagana. Í gær reyndu allavega nokkrar hressar stelpur að lokka þá sem mættu á Háskóladaginn til að kynna sér kynjafræðina.
* * *
Í gær var kosningamiðstöð VG opnuð. Hún er til húsa í Ingólfsstræti 5, við hliðina á Ara í Ögri. Þetta er sallafínt húsnæði og ég hvet alla þá sem hafa áhuga á stenslum og óvenjulegu veggjaskrauti til að kíkja þar við og skoða herlegheitin. Vinstri-grænir eru því í góðum gír og eiga vonandi eftir að halda áfram á sömu braut og í dag og halda áfram að auka við sig fylgi.
* * *
Austfirðingaballið síðastliðið föstudagskvöld var frekar misheppnað. Ekki það að Búálfarnir voru í góðum gír og það sem ég heyrði af Sú Ellen var ekki slæmt. Ég held að það hafi helst verið gaman fyrir þá sem hefur alltaf langað að vita hvernig það er að vera sardína í dós . Ég komst að því að mig langar ekki að vera sardína í dós. Þess vegna fór ég heim um leið og mér bauðst far aftur í bæinn. Mér fannst samt gaman að sjá Höska frænda bregða aðeins fyrir. Stórir og góðir frændur eru alltaf í góðum bestir! En ég er viss um það þetta ball á eftir að komast hátt á listanum yfir atburði þar sem ég hef eytt peningum mínum til óþurftar á árinu.