Það er kominn gestur… Svenni
Það er kominn gestur…
Svenni kom í gær. Það er komið að Stefáni og mér að taka við gestaplágunni að austan svo við drifum í að taka til í gestaherberginu svo Svenni þyrfti ekki að sofa uppí hjá okkur. Það hefði kannski gengið að hafa Svenna einan hjá okkur í rúminu en það hefði líklega orðið heldur þröngt á morgun þegar Hrönn bætist í hópinn.
Svenni var auðvitað sjanghæjaður í að gera barmmerki og við teljum ekki ólíklegt að hann reyni að koma okkur á samning við rísandi álver í Reyðarfirði! Eins og svo margir aðrir virðist Svenni hafa kolfallið fyrir framleiðsluferlinu og það er aldrei að vita nema að okkur takist að gera hann að róttækling um helgina.
* * *
Góð grein á Múrnum! Ég er einmitt að byggja upp kjark til að svara þessum sölumönnum og átti reyndar frumraun mína í því í gær.
Niður með einkatryggingar!!
Upp með almannatryggingar!!!!