Hvenær er rétt að sýna

Hvenær er rétt að sýna móralskan stuðning?

Stefán virðist hreinlega vera að verða veikur. Það er spurning hvort ég flytji að heimann í nokkra daga og reyni þannig að komast hjá því að fá kvef þar sem ég hef alls engann tíma til að verða veik. Það er þó ekki neitt sérlega fallegt. Þvert á móti ætti ég auðvitað að sýna honum móraslkan stuðning. Það er bara verst að það er einhvernvegin eins og merking “móralsks stuðnings” hafi breyst ansi mikið síðustu daga og ég er hreinlega ekki viss um að ég sé lengur fær um að sýna þannig stuðning. Þannig að nú eru góð ráð dýr. Vona bara að þau verði ekki borguð með mannslífum!

Comments are closed.