Niðurtalning í bombuna Fréttir ríkissjónvarpsins

Niðurtalning í bombuna

Fréttir ríkissjónvarpsins kl.12:20 í nótt eru eitt það skelfilegasta sjónvarpsefni sem ég hef á æfinni séð. Það var helst að sjá að við værum að fylgjast með niðurtalningu um áramót þar sem allir biðu spenntir eftir því að bomban springi. Það að bombunni væri beint gegn fólki af holdi og blóði var auðvitað ekki tekið fram.

En vegna þess að þessi óréttlætanlega og ósiðferðislega árás Bandaríkjanna á Írak er hafin verðum við að fjölmenna á Lækjartorg kl. 17:30 í dag og sína samstöðu okkar með írösku þjóðinni. Einnig verðum við að láta ríkisstjórnina hér heima vita að við séum ekki tilbúin til þess að leggja nafn okkar við svona aðgerðir.

Ég ætla rétt að vona að Halldór Ásgrímsson detti út af þingi í vor. -Já ég sagði það!

Comments are closed.