Frekar svekkt! Ég gleymdi að

Frekar svekkt!

Ég gleymdi að rassskella Stefán í morgun. Samt var það ég sem aldrei þessu vant vaknaði á undan og var því í afbragðs góðri aðstöðu til rassskellinga.
Ég er frekar svekkt yfir þessu. Toppurinn hefði þó verið að geta rassskellt ráðamenn. Ég gæti gert lista yfir þá en held að það verði of tímafrekt.

* * *

Svo skal böl bæta með að benda á eitthvað annað sagði skáldið! Þetta er því ekki 12 króna virði og ég get haldið áfram að vera á bömmer yfir ástandinu.

* * *

Góu-gleði VG var vonum framar góð. Ég sem hafði kviðið kvöldinu í marga daga.

Comments are closed.