Archive for March, 2003

Það er kominn gestur… Svenni

Thursday, March 27th, 2003

Það er kominn gestur…

Svenni kom í gær. Það er komið að Stefáni og mér að taka við gestaplágunni að austan svo við drifum í að taka til í gestaherberginu svo Svenni þyrfti ekki að sofa uppí hjá okkur. Það hefði kannski gengið að hafa Svenna einan hjá okkur í rúminu en það hefði líklega orðið heldur þröngt á morgun þegar Hrönn bætist í hópinn.

Svenni var auðvitað sjanghæjaður í að gera barmmerki og við teljum ekki ólíklegt að hann reyni að koma okkur á samning við rísandi álver í Reyðarfirði! Eins og svo margir aðrir virðist Svenni hafa kolfallið fyrir framleiðsluferlinu og það er aldrei að vita nema að okkur takist að gera hann að róttækling um helgina.

* * *

Góð grein á Múrnum! Ég er einmitt að byggja upp kjark til að svara þessum sölumönnum og átti reyndar frumraun mína í því í gær.

Niður með einkatryggingar!!

Upp með almannatryggingar!!!!

Það er allt að verða

Wednesday, March 26th, 2003

Það er allt að verða vitlaust!

Af hverju þurfti ég endilega að pikka sjúkdóminn sem er með félagið sem alltaf er að rífast út úr allri þeir böns af sjúkdómum sem fyrirfinnast í heiminum?

Hádegisfundur dauðans Áðan fór ég

Wednesday, March 26th, 2003

Hádegisfundur dauðans

Áðan fór ég á hádegisfund í Odda þar sem Halldór Ásgrímsson talaði. Miðik óskaplega var maðurinn ótrúverðugur og aumkunarverður. Það vistist nánast enginn trúa því sem hann sagði og ég er reyndar næstum því viss um að hann trúði ekki sjálfur helmingnum af því sem hann sagði.

Hefðu fundargestir mátt grípa fram í fyrir honum hefði samtalið líklega hljómað svipað og samtalið sem Sverrir átti við sjálfan sig. Á tímabili hélt ég að kallinn myndi fá hjartaáfall og var að hugsa um að vera með puttana tilbúna á símanum til að geta hringt í 112.

Hvenær er rétt að sýna

Monday, March 24th, 2003

Hvenær er rétt að sýna móralskan stuðning?

Stefán virðist hreinlega vera að verða veikur. Það er spurning hvort ég flytji að heimann í nokkra daga og reyni þannig að komast hjá því að fá kvef þar sem ég hef alls engann tíma til að verða veik. Það er þó ekki neitt sérlega fallegt. Þvert á móti ætti ég auðvitað að sýna honum móraslkan stuðning. Það er bara verst að það er einhvernvegin eins og merking “móralsks stuðnings” hafi breyst ansi mikið síðustu daga og ég er hreinlega ekki viss um að ég sé lengur fær um að sýna þannig stuðning. Þannig að nú eru góð ráð dýr. Vona bara að þau verði ekki borguð með mannslífum!

Ósmekklegt! Mér fannst Fréttablaðið í

Friday, March 21st, 2003

Ósmekklegt!

Mér fannst Fréttablaðið í dag vera sérlega ósmekklegt þar sem það spurði Örn Árnason hvort hann vildi ekki vera í Bagdad núna (Því hann væri svo mikill flugelda aðdáandi). Örn tók þátt í ósmekklegheitunum og sagði að bobmurnar væri aðeins of stórar fyrir hann. -Sérstaklega gott dæmi um að af einhvert okkar lendir á einhvern hátt í hinum ósmekklegu fjölmiðlum svari hann fullum hálsi og bendi viðkomandi fjölmiðli á að stríð sé ekkert grín heldur hreinasta ógeð og að það lágkúrulegasta af öllu lágkúrulegu sé að gera svona lítið úr hörmungum þeirra sem lenda í stríðsátökum.

Ég fékk það helst á tilfinninguna að rtistjórinn hefði ekki lesið í gegnum allt blaðið sitt því á einni af möftust síðunum var virkilega óhuggnarleg mynd af afskræmdum ungabörnum sem irðu svona í kjölfar stríðsátaka.

Niðurtalning í bombuna Fréttir ríkissjónvarpsins

Thursday, March 20th, 2003

Niðurtalning í bombuna

Fréttir ríkissjónvarpsins kl.12:20 í nótt eru eitt það skelfilegasta sjónvarpsefni sem ég hef á æfinni séð. Það var helst að sjá að við værum að fylgjast með niðurtalningu um áramót þar sem allir biðu spenntir eftir því að bomban springi. Það að bombunni væri beint gegn fólki af holdi og blóði var auðvitað ekki tekið fram.

En vegna þess að þessi óréttlætanlega og ósiðferðislega árás Bandaríkjanna á Írak er hafin verðum við að fjölmenna á Lækjartorg kl. 17:30 í dag og sína samstöðu okkar með írösku þjóðinni. Einnig verðum við að láta ríkisstjórnina hér heima vita að við séum ekki tilbúin til þess að leggja nafn okkar við svona aðgerðir.

Ég ætla rétt að vona að Halldór Ásgrímsson detti út af þingi í vor. -Já ég sagði það!

Úbbosí Ég var víst búin

Tuesday, March 18th, 2003

Úbbosí

Ég var víst búin að lofa Kötu að mæta í einhverja myndatöku. Það verður því minna um blogg en til stóð.

Órannsakanlegir vegir Það er aldeilis

Sunday, March 16th, 2003

Órannsakanlegir vegir

Það er aldeilis hvað ég er mikil kynvera! Bara alveg tvöföld! Skrítið að þetta hafi alls ekki viljað fara inn fyrst en að þegar þetta loks drattast inn komi það tvisvar. Ó-já, vegir netheima eru órannsakanlegir. Allavega skil ég ekkert í þeim.

Skussi! Af hverju eru ekki

Thursday, March 13th, 2003

Skussi!

Af hverju eru ekki fimm aukatímar í sólarhringnum um helgar? Þá væri ég mun betur í stakk búin til að ráðast núna í að gera allt sem ég hef ætlað að gera síðan á föstudag en hef einhvernvegin tekist að skussast frá að gera. Hvar er t.d. ritgerðin sem ég ætlaði að vera svo duglega að skrifa. Þetta hlýtur að vera morð-kanínunni að kenna!

Ég er kynvera! Ég er

Thursday, March 13th, 2003

Ég er kynvera!

Ég er að fara í vísindaferð á eftir í Hvíta húsið. Gaman, gaman.. Þetta er fyrsta vísindaferðin mín á þessum vetri og reyndar er þetta líka fyrsta vísindaferðin sem Kynvera, félag kynjafræðinema,stendur fyrir. Oh-ég er svo mikil kynvera!

Þannig að núna er eins gott að fara að koma sér að verki og sýna fram á einhver afköst í dag til þess að samviskubitið yfir að vera orðin full fyrir kvöldmat verði ekki of mikið.

Á morgun á svo að stofna Femínistafélag Íslands. Vei, vei vei.