Hvað varð um bloggið hennar
Hvað varð um bloggið hennar Ernu?
Og af hverju kom hún svo allt í einu aftur? Á hún sér kannski tvífara sem skrifar á ensku? Er ég að missa af einhverju stóru?
* * *
Í gærkvöldi fór ég í fyrsta skipti á hverfisbarinn minn, Kaffi Stíg. Það var áhugavert og flöskubjórinn þar er góður. Ég veit samt ekki hvort ég ætli að verða fastagestur . Þarna var kona sem kyssti Stefán í bak og fyrir og sagði að hann væri frábær. Hún hafði víst séð hann í Silfri Egils.
Mér líst eiginlega betur á að verða fastagestur á Vitabarinum þótt hann sé svolítið lengra í burtu. Við skötuhjúin verðum hreinlega að fara að prufa hamborgarana þar, þar sem allir segja að séu hrikalega góðir.
Það verður þó ekki í kvöld þar sem það verður risa fjölskyldu matarboð á Mánagötunni. Það er eins gott að pasta hússins verði jafn gott og venjulega.