Frábær gjöf Minn elskulegi kærasti
Frábær gjöf
Minn elskulegi kærasti gaf mér alveg frábæra gjöf í tilefni konudagsins. En það var bók um feminisma.
Það verður gaman að lesa hana og enn betra að ég get lesið hana án þess að hafa sérstakt samviskubit yfir að skólabækurnar sitji á hakanum.
* * *
Annars var þetta erfið helgi sem með öllu sínu skemmtanaveseni gerir það að verkum að ég er ekkert sérlega hress í dag.
Á föstudagskvöldið stóð Kynvera (félag kynjafræðinema) fyrir bjórkvöldi á Dillon. Þar var feikna stuð. Dillon er líka staður sem er virkilega að vinna á hjá mér. Svolítið slísí en með sjarma. Og góða tónlist. Það var frábært að vera loksins innan um fólk sem var tilbúið til að dansa og syngja hátt með lögunum af Stelpurokki.
Stelpur! Þið munið hvað við ræddum um. Þið verðið að hafa samband við mig og svo drífum við í að framkvæma!
Laugardagskvöldið fór aftur í jamm, í útskriftarveislu hjá Önnu frænsku Stefáns. Ég er að hugsa um að segja ekkert sérstaklega frá því. Enda kvöldið í hálfgerðri móðu.