Tímasóun Aldrei þessu vant las
Tímasóun
Aldrei þessu vant las ég grein á vefriti. Ég verð þó að viðurkenna að ég skildi hvorki haus né sporð af henni. Röksemdarfærslan er einhvernvegin svona: Iðnríki eyða of miklum peningum í vopn og geta þess vegna ekki veitt þróunarríkjum næga aðstoð. Þó er ekki raunsætt að iðnríkin afvopnist og stríð í Írak er óumflýjanlegt. Við verðum þó á sama tíma að tryggja stöðugleikann svo að öryggi okkar verði nú örugglega borgið. Greinin endar með því að segja að : “Stríðið við fátæktina verði langt og strangt en um leið ódýrara en nokkuð stríð sem þau há í dag.” Er niðurstaðan semsagt sú að af því að það er svo ódýrt að berjast við fátækt getum við í rauninni haft það sem hiliðarverkefni á sama tíma og við berjumst í öðrum “alvöru” bardögum?
Af hverju eyðir maður dýrmætum tíma sínum í að lesa svona hluti?